Sport

Gunnar Nel­son með á­kall til ráða­manna: „Er hálf galið“

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnar Nelson, UFC bardagakappi og þjálfari hjá Mjölni
Gunnar Nelson, UFC bardagakappi og þjálfari hjá Mjölni Vísir/Bjarni

UFC bar­daga­kappinn Gunnar Nel­son, sem jafn­framt er þjálfari í blönduðum bar­dagaíþróttum hjá Mjölni, kallar eftir því að komið verði á al­menni­legu reglu­verki í kringum íþróttina hér á landi. Það sé hálf galið að slíkt hafi ekki verið gert nú þegar að íþróttin sé í mikilli sókn og bar­daga­kvöld á heims­mæli­kvarða verið haldið í Reykja­vík.

„Þetta er náttúru­lega al­gjör draumur,“ segir Gunnar um bar­daga­kvöldin tvö, Gla­cier Fig­ht Night, sem farið hafa fram hér á landi til þessa. „Ég bjóst nú við þessu fyrr, þegar að maður byrjaði að keppa sjálfur þá sá maður þetta alltaf fyrir sér ein­hvern veginn handan við hornið. En við höfum alltaf verið að bíða eftir því að fá al­menni­lega um­gjörð og reglu­gerð um þetta. Það er frum­varp sem liggur núna á þinginu og vonandi að það skili sér sem fyrst í gegn.“

Og á Gunnar þar við frum­varp til laga um bar­dagaíþróttir sem liggur nú fyrir Alþingi og er flutt af Hildi Sverris­dóttur, þing­manni Sjálf­stæðis­flokksins en hefur enn ekki verið tekið til um­ræðu á þingi.

Blandaðar bar­dagaíþróttir eru á gráu svæði þegar kemur að stöðu íþróttarinnar gagn­vart ís­lenskum lögum. Hvergi er minnst á það að keppni í blönduðum bar­dagaíþróttum (MMA) sé bönnuð en þá er heldur ekki til al­menni­legt reglu­verk er varðar fram­kvæmd slíkra keppna en frum­varpið sem minnst var á hér fyrr í greininni á að bæta úr því.

Keppni í MMA hefur verið lögleidd í vel flestum ríkjum og gæti Ísland því talist í flokki með löndum sem við jafnan viljum ekki bera okkur saman við. Ekki er vitað um lögbundið bann við iðkun og keppni í MMA í Norður-Kóreu en þó talið ólíklegt að leyft sé að stunda íþróttina þar þar sem einræðisstjórnin er með þétt tak á íþróttaiðkun þjóðarinnar. Þá bönnuðu Talíbanar MMA í Afganistan árið 2024 og töldu það stangast á Sjaría, lagakerfi Íslam. Þá er bann við MMA í Túrkmenistan. 

Hálf galið og löngu tímabært

Það er því ekki að sjá að það sé eitt­hvað sem banni fólki út í bæ, sem kemur ekkert nálægt skipulögðu íþrótta­starfi í tengslum við MMA, að skipu­leggja bar­daga­kvöld. Gunnar og faðir hans, Haraldur Dean Nel­son, hafa lengi talað fyrir því að komið verði á al­menni­legu reglu­verki í kringum íþróttina þar sem að öryggi og heilsa bar­dagafólk er í fyrir­rúmi.

„Þetta er náttúru­lega alltaf ákveðin áhætta. Tryggingar fyrir bar­dagafólk og viður­kenning skiptir bara öllu máli. Líka bara að það geti ekki hver sem er farið og haldið hvað sem er. Við þurfum að fá ein­hverja sam­nefnara í tengslum við svona reglu­gerð, gera þetta að viður­kenndri íþrótt sem menn geta keppt í hérna heima. Það er löngu kominn tími á það og er hálf galið að við séum eins og risa­eðlur með þetta.

Eins og er þarftu kannski ekkert að vera með sjúkra­liða, lækni eða eitt­hvað á þá leið í tengslum við svona bar­daga­kvöld. Það eru bara ekki til nein lög um þetta. En það er mjög vel að þessu staðið hjá Bjarka Þór og þeim hjá Reykja­vík MMA þegar kemur að Gla­cier Fig­ht Night og við erum mjög ánægð með það en finnst samt sem áður það vera leiðin­legt að það sé ekki komin um­gjörð um þetta. Þetta er kannski það sem þurfti til þess að fá fólk aðeins til að átta sig á hvað þetta er og varpa ljósi á áhugann hér heima. Það er gífur­legur áhugi á þessu.“

Draumar handan við hornið

Til marks um það séu MMA tímarnir sem boðið er upp á hjá Mjölni stapp­fullir.

„Ekki endi­lega af fólki sem vill fara að keppa í MMA. Það er lang­minnsta hlut­fallið. Þetta er bara fólk sem hefur gaman af því að læra inn á íþróttina, hefur gaman af íþróttinni. Það er ekkert skil­yrði að þú þurfir að keppa í íþróttinni, þarft ekki einu sinni að sparra ef þú vilt það ekki. Þú kemur bara og þetta er þín líkams­rækt.“

Logi Geirsson er einn efnilegasti bardagakappi landsins og varð meistari á Glacier Fight Night á dögunum.vísir / ívar

En það að eiga kost á því að keppa á heima­velli hjálpi unga bar­dagafólkinu sem stefni langt í íþróttinni.

„Þeir eru nokkrir sem eru að stefna alla leið og hafa sýnt það í síðustu bar­dögum sínum að það er bara draumur sem er í raun handan við hornið hjá þeim. En það þarf ein­hverja um­gjörð til að fá styrktaraðila og svo­leiðis, stækka sportið hér heima og gera það viður­kennt. Það er bara löngu kominn tími á þetta.“

Gunnar hefur verið lengi í íþróttinni og er nú bæði at­vinnu­maður sem og þjálfari hjá Mjölni. Hann hefur tekið eftir breytingu á tón í um­ræðunni um blandaðar bar­dagaíþróttir.

Gunnar hefur verið flottur fulltrúi lands og þjóðar á heimsvísu þegar kemur að blönduðum bardagaíþróttumVísir/Getty

„Ég held að for­dómarnir hafi nú minnkað tölu­vert. Ég er búinn að keppa í þessu sem at­vinnu­maður síðan 2007, búinn að vera í UFC síðan 2012. Maður finnur að fólk er farið að þekkja þetta. Um­ræðan er allt önnur heldur en hún var árið 2010 eða jafn­vel fyrr. Mörgum fannst þetta frekar ógeðs­legt og hitt og þetta. Svo er fólk búið að átta sig á þessu núna. Lang lang flestir. Ég held þetta sé bara ein­hver seina­gangur, að bara koma þessu í gegn. Þetta er kannski ekkert efst á listanum hjá þing­mönnum og pólitíkusum, að setja þetta í gegn. Það er allt til staðar. Þetta þarf væntan­lega að fara í gegnum ein­hverjar nefndir og svo­leiðis lagað og svo þarf bara að kjósa um þetta á þingi. Það þarf bara að gera það eins fljótt og auðið er.“

Tólf ára sonur Gunnars varð fyrir áhrifum

Bar­daga­kvöldin á vegum Gla­cier Fig­ht Night, sér í lagi það sem var haldið í Fram­heimilinu undir lok síðasta mánaðar, hafi verið á heims­mæli­kvarða.

„Þetta var alveg brilljant. Ekkert eðli­lega vel gert hjá þeim. Þetta er annað kvöldið sem þeir standa fyrir, tölu­vert stærra en hitt og miklu flottara. Ég hef farið á ég veit ekki hvað mörg kvöld í bar­daga­kvöld út í Evrópu, Eng­landi og svo­leiðis sem hafa ekki verið í hálf­kvisti við þetta.“

Og Gunnar hefur fundið fyrir þeim jákvæðu áhrifum sem þetta hefur haft á hans bar­dagafólk sem steig inn í búrið á um­ræddu bar­daga­kvöldi.

„Þeim finnst þetta ekkert eðli­lega spennandi og mér líka. Þetta var náttúru­lega bara frábært kvöld. Þó svo að það hafi kannski ekki byrjað neitt sér­stak­lega æðis­lega fyrir Ís­lendingana. En þakið rifnaði gjör­sam­lega af höllinni þegar að okkar maður, Mikael Leo Aclipen, stöðvaði blæðinguna fyrir Ís­lendingana. Stemningin var náttúru­lega bara ótrú­leg. Ég á nú son sem er að vera tólf ára núna í maí. Hann hefur alltaf verið í fót­boltanum en ég tók hann með mér á þetta bar­daga­kvöld og hann sat með afa sínum og konunni minni á borði. Eftir þetta kvöld var hann alveg óður í að mæta hingað og fara æfa MMA. Og það voru fleiri, eftir þetta kvöld, sem komu að mér. Meðal annars strákar sem eru að æfa og eru ekki byrjaðir að keppa. Sem urðu fyrir miklum áhrifum af þessu og langar að fara keppa.“

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×