Farsældarlög fyrir Bítlakynslóðina? Gunnar Salvarsson skrifar 10. mars 2026 11:45 Nývakinn áhugi minn á öldrunarmálum er ekki tilkominn vegna þess að ég leit í spegil. Það var kennitalan sem öskraði á mig, vísaði mér á dyr á vinnustaðnum og gaf til kynna að ég væri orðinn of gamall og lúinn til þess að geta unnið nokkuð að gagni. Flest okkar vita að kennitalan segir nánast ekkert um aldur, hvað þá getu eða færni. Hún er hins vegar enn notuð eins og refsivöndur gegn opinberum starfsmönnum sem fá þau skilaboð við brottrekstur af vinnustaðnum að þeir séu orðnir ónytjungar. Við sem ólumst upp með Bítlana í eyrunum og hlustuðum á Paul syngja ellina í laginu When I’m Sixty-Four eigum auðvelt með að setja okkur í spor hans. Paul hélt að hann yrði orðinn gamalmenni á þeim aldri, hárlítill og hossandi barnabörnum, líkt og margir komnir yfir sextugt voru á þeim tíma þegar lagið var hljóðritað. En nú er öldin önnur. Fólk er almennt betur á sig komið, bæði andlega og líkamlega, ekki slitið og úrvinda. Paul sjálfur er að verða 84 ára og lítur út eins og rúmlega sextugur. Aðstandendur fá umönnun óumbeðið í fangið Í síðustu viku skrifaði ég grein um öldrun Bítlakynslóðarinnar sem vakti talsverða athygli. DV gerði að fréttapunkti úr greininni að sameinað sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu gæti orðið sú sterka eining sem gæti samhæft betur þjónustu við aldraða. Það þyrfti sannarlega að ræða, því þjónusta við elstu kynslóðina er dreifð milli margra kerfa sem vinna takmarkað saman. Auðvelda leiðin og sú algengasta er að varpa ábyrgðinni yfir á aðstandendur. Margir þekkja af eigin raun þá stöðu sem skyndilega kemur upp þegar foreldrar eða aðrir nákomnir þurfa aukna aðstoð heima fyrir. Sjúkrahús eða aðrar heilbrigðisstofnanir útskrifa gamla fólkið og senda haltrandi burt með þeim skilaboðum að best sé að vera heima. Það kann að vera rétt, svo fremi að viðeigandi þjónusta sé til staðar. Veruleikinn er sá að heimaþjónusta dugar hvergi nærri til að tryggja lágmarksumönnun. Fyrir marga aðstandendur verður þetta í reynd annað fullt starf, eða því sem næst. Í mörgum tilvikum eru nánustu aðstandendur börn sem eru sjálf komin á miðjan aldur eða eldri og þurfa að samræma vinnu og fjölskyldulíf en fá skyndilega í fangið óumbeðið verkefni sem tekur ærinn tíma. Einnig er hópur aldraðra sem hefur einfaldlega ekki slíkan stuðning og verður að treysta á guð og lukkuna og neyðarhnapp Securitas. Þá er skammgóður vermir að hlusta á Here Comes the Sun. Farsæld barna - en hvað með aldraða? Í þessari viku standa Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir svokallaðri farsældarviku. Markmið vikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og varpa ljósi á þá jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar farsældarlaganna. Þau lög fólu í sér nýja nálgun þar sem barnið er sett í öndvegi og tryggt að þjónusta og stuðningur við það sé samþættur þvert á kerfi. Allt gott og blessað. En er ekki tímabært að beina sambærilegri athygli að stöðu aldraðra í samfélaginu? Eru í smíðum farsældarlög fyrir Bítlakynslóðina og aðra aldraða? Þurfum ekki að finna upp hjólið Ég hef lítillega kynnt mér þjónustu við aldraða í öðrum löndum og nefni tvö athyglisverð dæmi. Sveitarfélög bera meginábyrgð á þjónustunni í Danmörku. Þar er heimahjúkrun, félagsþjónusta og endurhæfing skipulögð sem ein heild í nærumhverfi fólks. Áherslan er á að hjálpa fólki að búa heima eins lengi og kostur er, með þjónustu sem er samhæfð og veitt af föstum teymum. Þegar aldraðir þurfa aukinn stuðning er fyrst reynt að efla færni þeirra til að takast á við daglegt líf sjálfir, fremur en að auka umönnun án frekari markmiða. Þetta hefur aukið lífsgæði fólks og dregið úr þörf fyrir vist á hjúkrunarheimilum. Í Hollandi hefur svokallað Buurtzorg-módel vakið mikla athygli á síðustu árum. Þar starfa lítil teymi hjúkrunarfræðinga í hverfum sem bera ábyrgð á heildarþjónustu við skjólstæðinga. Hugmyndin er einföld: minnka skrifræði, treysta fagfólki og byggja þjónustuna í kringum einstaklinginn í stað þess að skipta henni niður í mörg smáverkefni. Teymin hafa mikið faglegt sjálfstæði og fylgja sama fólki yfir lengri tíma. Niðurstaðan hefur víða orðið meiri samfella í þjónustu, ánægðara starfsfólk og í mörgum tilvikum lægri heildarkostnaður. Ég er ekki að segja að Íslendingar geti einfaldlega tekið upp lausnir erlendis frá óbreyttar. En dæmin sýna að það er hægt að skipuleggja þjónustuna á annan og skilvirkari hátt. Ef Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vilja raunverulega ræða farsæld samfélagsins mætti því spyrja hvort næsta sameiginlega verkefnið ætti ekki að snúast um þjónustu við aldraða. Þar er þörfin augljós. Kerfin eru mörg. Samhæfingin lítil. Slík umræða gæti jafnframt opnað augun fyrir því hvort stærri og öflugri sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu gætu betur samhæft þá þjónustu sem nú er dreifð á milli margra kerfa. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Eldri borgarar Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar