Jákvæð áhrif Kópavogsleiðarinnar Erla Þórisdóttir skrifar 10. mars 2026 14:30 Umræða um leikskólamál hefur verið lífleg undanfarið og Kópavogsleiðin sérstaklega til umræðu. Skoðanir eru skiptar, eins og eðlilegt er þegar gerðar eru breytingar á mikilvægu samfélagskerfi. Undirrituð er foreldri tveggja leikskólabarna í Kópavogi og lýsir yfir ánægju yfir Kópavogsleiðinni sem fjölskyldan hefur nýtt á annað ár. Ég og eiginmaður minn vinnum bæði fullt starf í krefjandi umhverfi og sinnum jafnframt trúnaðarstörfum og stjórnarsetu í samfélaginu. Daglegt líf getur því verið annasamt og gott skipulag skiptir miklu máli. Sveigjanleiki Kópavogsmódelsins hefur reynst okkur afar vel og leikskóli sona okkar hefur ítrekað komið til móts við fjölskylduna með sveigjanlegum vistunartíma. Á leikskóla barna minna fara um 34% barna svokallaða Kópavogsleið. Fyrir okkur hefur hún meðal annars orðið til þess að við höfum hagrætt og aðlagað vinnutilhögun og skipulagt daginn þannig að börnin eyði ekki lengri tíma í leikskólanum en þörf er á. Það hefur skilað sér í rólegri morgnum, innihaldsríkari samtölum, fleiri hlátrasköllum og nærandi samveru í eftirmiðdaginn. Börnin eru yfirvegaðari þegar heim er komið og við fáum meiri gæðatíma saman sem fjölskylda. Þetta fyrirkomulag skiptir miklu máli fyrir fólk í vaktavinnu eða með sveigjanlegan vinnutíma. Samhliða innleiðingu Kópavogsleiðarinnar voru tekin upp haust- og vetrarfrí í leikskólum Kópavogs og hefur það fyrirkomulag skilað fjölskyldunni dýrmætum minningum og samveru sem við erum afskaplega þakklát fyrir. Það eru forréttindi að eiga heilbrigð börn og þakkarvert að fá tækifæri til að verja sem mestum tíma með því dýrmætasta sem við eigum, á því aldurskeiði barnanna þar sem við foreldrarnir erum enn þá spennandi leikfélagar. Innan skamms munu jafnaldrar og tómstundir heilla þau og beina athygli þeirra að öðru. Áður en Kópavogsleiðin var innleidd var vistunartími um 85% allra leikskólabarna í Kópavogi lengri en vinnuskylda starfsmanna í fullu starfi. Í dag er þetta hlutfall 34,4%. Þessi breyting hefur haft jákvæð áhrif bæði á starfsemi leikskólanna og daglegt líf barna og fjölskyldna. Á þeim tíma sem Kópavogsleiðin hefur verið starfræk hefur aldrei þurft að loka fyrr vegna manneklu í leikskóla sona minna. Skammtímaveikindum starfsfólks hefur fækkað og bæði ánægja starfsfólks og foreldra virðist hafa aukist. Kópavogsbær hefur jafnframt náð að halda vel í starfsfólk með víðamikla reynslu og viðeigandi menntun, sem skiptir miklu máli fyrir stöðugleika og gæði í starfi leikskólanna. Þetta endurspeglast skýrt í daglegu starfi. Starfsfólkið geislar af ánægju þegar tekið er á móti börnunum og sinnir þeim af alúð og fagmennsku. Þegar leikskólar hafa stöðugt, reynslumikið og vel menntað starfsfólk njóta börnin þess beint í formi betri umönnunar, meiri róar og faglegra starfsumhverfis. Kópavogsleiðin hefur einnig jákvæð áhrif á heimilisbókhald þeirra fjölskyldna sem geta nýtt sér þessa leið en fyrir þær fjölskyldur sem ekki ná að nýta Kópavogsmódelið er boðið upp á þrepaskipta tekjutengda afslætti. Hefðbundin leikskólavistun tveggja barna í Kópavogi frá kl. 8-16 kostar 99.334 kr á mánuði. Með Kópavogsleiðinni greiðir fjölskylda mín hins vegar 23.975 krónur. Mismunurinn er því rúmlega 75 þúsund krónur á mánuði. Fyrir fjölskyldu mína samsvarar þetta um 140 þúsund krónum í launum hver mánaðamót eða tæplega 1,7 milljón króna launahækkun árlega. Við hljótum sem samfélag að fagna því þegar fjölskyldur fá meiri samverutíma og börn verja ekki lengri tíma í leikskóla en þörf er á. Fyrir þau börn sem þurfa lengri vistun verður umhverfið jafnframt rólegra og yfirvegaðara. Í hraðri samtíð þar sem biðlistar vegna ADHD-greininga lengjast, skjánotkun barna er viðurkennd við matarborð á veitingastöðum og stöðugt áreiti frá samfélaginu keppist um athygli foreldra -í formi hlaupahópa, steypiboða og endalausrar dagskrár, er dýrmætt að skapa aðstæður sem styðja við tengsl foreldra og barna. Það er einmitt það sem Kópavogsleiðin býður upp á og þess vegna m.a. er gott að búa í Kópavogi. Bestu þakkir til starfsfólks leikskóla Kópavogsbæjar fyrir að sinna okkar allra mikilvægasta fólki af kærleik og umhyggju, takk fyrir að standa mikilvægustu vakt í heimi! Höfundur er læknir og hagsýn húsmóðir í Kópavogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Leikskólar Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar