Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Aron Guðmundsson skrifar 11. mars 2026 11:58 Hjörvar Hafliðason segir það hafa verið rétt hjá Igor Tudor, knattspyrnustjóra Tottenham að taka markvörðin Kinsky af velli eftir ítrekuð mistök í leik gærkvöldsins gegn Atletico Madrid Vísir/Samsett Hjörvar Hafliðason, helsti sparkspekingur þjóðarinnar, er ósammála stórum prófílum í knattspyrnuheiminum sem hafa gagnrýnt Igor Tudor, knattspyrnustjóra Tottenham harðlega fyrir það hvernig hann tók á aðstæðum í gær þegar að markmaður Tottenham hafði gerst ítrekað sekur um slæm mistök. Hjörvar telur Tudor hins vegar ekki stætt lengur í starfi.
Tottenham tapaði í gær 5-2 á útivelli gegn Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Igor Tudor, knattspyrnustjóri Tottenham, ákvað að tefla fram varamarkverði liðsins Antonin Kinsky í rammanum þar sem að aðalmarkmaður liðsins, Vicario, hafði ekki verið að standa sig vel fram að leik gærkvöldsins. Skemmst er frá því að segja að Kinsky átti afleitan leik og gaf Atletico Madrid tvö mörk á silfurfati. Leikar stöðu 3-0 Madrídingum í vil þegar að fimmtán mínútur höfðu liðið af leiknum, þá fékk Tudor nóg og tók Kinsky af velli. „Ég fullyrði það að þetta kostar Igor Tudor starfið. Ég skal líka fullyrða að það er ekki nokkurt einasta félag á einhverju háu gæðastigi sem er að fara ráða Igor Tudor. Að gera drengnum þetta. Þetta er bara ljótt,“ sagði Rikki G, sem lýsti leiknum, á þeim tímapunkti en í kjölfarið hefur átt sér stað mikil umræða og sett fram gagnrýni á störf Tudor. Hárrétt að skipta honum út af Fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmennirnir Peter Schmeichel og Joe Hart eru meðal þeirra sem hafa gagnrýnt Tudor. Schmeichel sagði Tudor hafa rústað ferli Kinsky. „Ég er búinn að fylgjast vel með umræðunni. Búinn að sjá það sem Joe Hart og Peter Schmeichel höfðu að segja um þetta. Ég er ósammála þeim. Ég held að það sé hárrétt að taka Kinsky út í þessari stöðu,֧ segir Hjörvar Hafliðason, Dr. Football, í samtali við íþróttadeild. Klippa: Hjörvar um mál málanna í fótboltanum í dag „Hann gerir tvö skelfileg mistök. Eiginlega verri mistökin koma í seinna markinu þar sem að hann reynir sendingu sem er alveg ofboðslega erfið í því rugli sem Tottenham liðið var í á þeim tíma. Ég held það hafi verið hárrétt ákvörðun hjá Igor Tudor að taka hann af velli. Hvernig hefði staðan verið hefði hann haldið honum inn á? Það má alveg taka markmenn af velli. Ég held að ástæðan fyrir því að fólki er svona brugðið sé sú að þetta gerist svo sjaldan. Hérna í gamla daga var einn skiptimaður eða tveir skiptimenn. Maður menn voru ekkert að “eyða“ skiptingu í markmann. Ég held það hafi verið hárrétt ákvörðun að taka hann af velli því ég held þetta hefði orðið verra hefði hann haldið áfram inn á.“ Tudor hafi tekið sénsinn með því að stilla og það hafi ekki gengið upp. „Hann tekur sénsinn að skipta um markmann því Vicario hefur ekki verið frábær. Hann síðan áttar sig á því að þetta er engan veginn að ganga. Tudor er bara búinn hjá Tottenham. Ætlarðu hins vegar að skipta um þjálfara núna? Láta nýja manninn fá Liverpool á sunnudaginn og Atletico Madrid í kjölfarið? Byrja væntanlega á tveimur töpum ef við erum algjörlega raunsæir. Þetta er rosalega erfið staða.“ Nánar verður rætt við Hjörvar um málið og stöðu Tottenham, sem er í harðri fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni, í Sportpakkanum á Sýn í kvöld.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Tottenham Hotspur Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira