Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Jakob Bjarnar skrifar 11. mars 2026 14:31 Það á ekki af Axel að ganga. Hann komst að því nú í morgun að hann er á málaskrá lögreglu sakaður um að hafa sigað hundi sínum á börn, hótað nágrönnum með skotvopni og gangi til sálfræðings vegna reiðikasta. Axel telur þetta tengjast heimsókn lögreglu sem vildi kanna vopnakost hans. vísir/bjarni Axel Aage Schiöth, sem sviptur var skotvopnaleyfi og hefur nú kært þá ákvörðun lögreglunnar til dómsmálaráðuneytis, segir málið verða stöðugt sérkennilegra því hann hafi nú spurnir af því að hann sé með númer hjá lögreglu þar sem hann er vændur um nokkuð sem hann kallar haugalygi. „
Ég var að tala við lögregluna á stjórnsýslusviði og hún upplýsti mig um að nafn mitt sé að finna í málsskjölum þar sem ég hafi verið tilkynntur. Hún sagðist ekki geta gefið mér upp hver kærði mig á grundvelli persónuupplýsinga,“ segir Axel í samtali við Vísi. Og ásakanirnar eru með þeim hætti að Axel er hvumsa yfir þeim. Honum þykir þetta mál verða stöðugt einkennilegra. Vísir greindi í gær frá máli þar sem þrír lögregluþjónar heimsóttu Axel að kvöldi októbermánaðar á síðasta ári og gerðu úttekt á stöðu mála er varðar skotvopnaeign hans. Axel á fjórar byssur og var að auki með tvær byssur í eigu föður hans. Axel var með eina byssuna sundurtekna í þar til gerðri tösku en allt kom fyrir ekki, hann mátti þola að byssurnar voru gerðar upptækar og hann síðan í kjölfarið sviptur skotvopnaleyfi. Hann hefur kært þann úrskurð til dómsmálaráðuneytisins en Ívar Pálsson lögmaður hans sendi í morgun inn greinargerð þar sem málsatvik eru tíunduð. Sagður í sálfræðimeðferð vegna reiðikasta Axel segir að símtalið frá lögreglu hafi komið sér á óvart en það kunni hins vegar að skýra hvernig á því stendur að gengið var svona hart fram gegn honum. Axel segir gott að vita af því að lögreglan sé viðbúin að grípa geðveika byssumenn ef svo ber undir en hann sé svo sannarlega ekki slíkur maður. „Ég hef sem sagt verið tilkynntur fyrir að hafa sleppt og sigað hundi á börn, að ég hafi hótað nágrönnum mínum með skotvopnum og að ég sé í sálfræðimeðferð vegna reiðikasta!“ Axel segist hreinlega ekki vita hvernig hann eigi að snúa sér í þessu. „Ekkert af þessu á sér nokkra stoð í raunveruleikanum,“ segir Axel forviða. En hann hafði samband við blaðamann eftir að hann hafði talað við lögregluna. Vísir hafði samband við lögregluna sem sagðist ekki geta tjáð sig um einstaka mál og það gæti verið óvarlegt að tengja þetta tvennt en sjálfur er Axel ekki í nokkrum vafa. Hann telur að þarna hljóti að vera beint orsakasamhengi á milli en um sé að ræða þvælu sem allir sem sig þekki geti vottað um. Aldrei sigað Toller-tíkinni á hvorki einn né neinn Axel telur sig meira að segja vita hver tilkynnti hann til lögreglu en hann hefur átt í nágrannadeilum vegna skiptingar á lóð en þau mál hafi hins vegar verið leyst. „Það mætti halda að einhver sé að reyna að klekkja á mér en svo virðist sem þessi þvæla sé komin frá einum og sama aðilanum. Seinasta tilkynningin barst 16. október, sem er sami dagur og lögreglan mætti í óboðað skotvopnaeftirlit.“ Miðað við tilkynningu til lögreglu mætti ímynda sér að hundur Axels sé grimmur og vígalegur, en staðreyndin er sú að hann á tveggja ára tík af Toller-kyni, sem er sú sama og sést á myndinni hér að ofan og er þekkt fyrir að vera einstaklega geðprúð. Axel veltir því fyrir sér hvort þetta veki ekki upp spurningar um vinnubrögð lögreglu, hvort það geti verið svo að hægt sé að siga lögreglu á þann sem mönnum er í nöp við. „Og rústa mannorði og atvinnuréttindum með ósannindum og illyrðum?“ Spurður nánar um hótanir segir Axel það rétt, hann eigi vissulega hund en það sé tveggja ára tík af Toller-kyni sem geri ekki flugu meina. „Ég hef aldrei sigað þessum hundi á hvorki einn né neinn.“ Axel segir að hann hljóti að skoða þetta mál með lögfræðingum sínum.
Skotvopn Lögreglan Lögreglumál Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetursins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld Sjá meira