Innlent

Segist sak­laus

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Kristján Einar dvaldi í átta mánuði í spænsku fangelsi.
Kristján Einar dvaldi í átta mánuði í spænsku fangelsi. Vísir/Einar

Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini, segist saklaus af öllum ásökunum sem hafa komið fram varðandi kynferðisbrot sem lögreglan a Akureyri rannsakar. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Kristján grunaður í málinu.

Lögreglan á Akureyri hefur til rannsóknar kynferðisbrot sem átti sér stað í bænum aðfaranótt sunnudags. Fleiri en einn sakborningur eru grunaðir vegna málsins en heimildir fréttastofu herma að hann sé einn þriggja sem voru handteknir.

 Í nýrri færslu á Instagram segist Kristján Einar vera saklaus af þeim ásökunum sem komið hafa fram. Hann titlar færsluna með orðunum „meint kynferðisbrot á Akureyri“.

„Ég mun ekki tjá mig frekar um málið á meðan málið er til rannsóknar hjá lögreglu,“ skrifaði hann.

Hafdís Björg Kristjánsdóttir, fyrrverandi kærasta Kristjáns Einars, steig fram í kjölfar fregna af handtökunni og lýsti ofbeldi sem hún varð fyrir í sambandinu. Svala Björgvinsdóttir, sem einnig var í sambandi með Kristjáni Einari, lýsti yfir stuðningi við Hafdísi og sagðist einnig hafa orðið fyrir ofbeldi af hans hálfu.

Fangavist á Spáni

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kristján Einar kemst í kast við lögin. Hann var handtekinn á Spáni í mars árið 2022 og vistaður í fangelsi. Fyrst um sinn sagði Kristján að hann hefði verið handtekinn fyrir „fyllerísslagsmál“ en var í raun dæmdur fyrir ofbeldisfullt rán.

Hann hafi, ásamt öðrum manni, rænt fjármunum af þeim þriðja, og svo reynt að ræna fjórða manninn að nóttu til. Við ránið hafi þeir notast við oddhvassan hlut til að hóta fórnarlömbunum. Fyrir ránið hlaut hann þriggja ára og níu mánaða skilorðisbundinn fangelsi og var sleppt úr gæsluvarðhaldi skömmu eftir að dómurinn féll.

Ári síðar, í janúar 2023, var hann handtekinn af sérsveitarmönnum á Húsavík. Hann sagði á þeim tíma að honum hafi verið sleppt eftir að neikvæð niðurstaða fékkst úr áfengis- og vímuefnaprófi.

Í september 2025 greindi hann frá því á samfélagsmiðlum að hann væri á leið í meðferð vegna áfengisvanda.   

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×