Spilafíkn er lýðheilsumál Oddur Sigurjónsson skrifar 12. mars 2026 07:00 Víða er marsmánuður tileinkaður vitundarvakningu um spilavanda. Það er full ástæða til að staldra líka við hér á landi. Spilafíkn er alvarlegur heilbrigðis- og geðrænn vandi sem getur haft gríðarleg áhrif á fjárhag, fjölskyldulíf, andlega líðan og í versta falli verið bein ógn við líf fólks. Rannsóknir síðustu ára hafa ítrekað sýnt fram á sterk tengsl milli spilavanda og sjálfsvígshugsana, sjálfsvígstilrauna og sjálfsvíga. Alþjóðleg fræðileg umræða hefur líka orðið afdráttarlausari með árunum. Spilamarkaðurinn hefur breyst hratt með auknu aðgengi í gegnum síma, netspilun, íþróttaveðmál og sífellt ágengari markaðssetningu. Sérfræðingar hafa varað við því að þessi þróun snerti ungt fólk sérstaklega, enda er fjárhættuspilun orðin sýnilegri, aðgengilegri og eðlilegri hluti af stafrænu umhverfi þess. Þess vegna vekur það athygli að þegar íslensk stjórnvöld setja fram stefnu í geðheilbrigðismálum og aðgerðir til að draga úr sjálfsvígum, þá virðist spilafíkn fá litla sem enga sérstaka umfjöllun. Í aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi 2025-2030 er réttilega fjallað um tengsl áfengis- og vímuefnavanda við sjálfsvíg og bent á að takmörkun aðgengis sé áhrifarík leið til að draga úr skaða. Það er mikilvægt. En það er erfitt að skilja hvers vegna sambærileg hugsun virðist ekki ná til spilavanda, þrátt fyrir að tengslin við geðrænan vanda og sjálfsvíg séu vel þekkt. Sú staða birtist ekki aðeins í stefnum og aðgerðaáætlunum heldur líka í kerfunum okkar. Í frétt RÚV í október 2025 kom fram að enginn sérþekking væri á spilafíkn hjá embætti landlæknis. Það segir sitt um stöðu málaflokksins. Þegar vandi er hvorki sýnilegur í stefnum né innan lykilstofnana heilbrigðiskerfisins er hætt við að hann verði áfram vanmetinn, þrátt fyrir alvarlegar afleiðingar fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Sama mynstur virðist sjást í nýjum drögum að stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til ársins 2035. Þar er megináherslan á áfengi og önnur vímuefni, en spilafíkn virðist enn á jaðri stefnumótunnar stjórnvalda. Það er umhugsunarefni. Þegar vandi er ekki nefndur með skýrum hætti í stefnum, mælist hann síður, fær síður fjármagn og verður áfram ósýnilegri í þjónustukerfinu. Það er þó eitt jákvætt skref. Í nýjum heildarsamningi Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ, sem kynntur var í desember 2025, er meðferð við spilafíkn loksins viðurkennd sérstaklega sem hluti af samningi. Það er mikilvægt og löngu tímabært. En það dugar ekki eitt og sér. Meðferðarsamningur leysir ekki af hólmi skýra stefnu, forvarnir, skimun, fræðslu og markvissa viðurkenningu stjórnvalda á því að spilafíkn sé raunverulegt lýðheilsumál. Ef stjórnvöld ætla sér í alvöru að efla geðheilbrigði og fækka sjálfsvígum, þá geta þau ekki haldið áfram að líta fram hjá spilavanda. Höfundur er áfengis- og vímuefnaráðgjafi með alþjóðlega vottun í ráðgjöf vegna spilavanda (ICGC-I) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi Fíkn Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar