Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Samúel Karl Ólason skrifar 13. mars 2026 08:04 Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir árásina á franska hermenn í Írak óréttlætanlega. AP/Abdul Saboor Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fordæmdi í nótt drónaárás í norðurhluta Íraks. Nokkrir franskir hermenn særðust og einn yfirmaður lét lífið í árásinni. Hermennirnir hafa verið að þjálfa írakska Kúrda í að berjast gegn vígahópum á svæðinu.
Nokkur hundruð franskra hermanna eru á svæðinu þar sem þeir hafa þjálfað Íraka og tekið þátt í baráttunni gegn vígamönnum Íslamska ríkisins í gegnum árin. Skömmu áður en árásin var gerð höfðu Íranir gert árás á ítalska herstöð á svæðinu þar sem þjálfun fer einnig fram, samkvæmt frétt Reuters. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í nótt sagði Macron að hermaðurinn Arnaud Frion hefði dáið fyrir Frakkland. Þá sagði hann að árásin frá Íran, sem beinst hefði gegn hermönnum sem hefðu tekið þátt í baráttunni gegn ISIS frá árinu 2015 væri óásættanleg. Hermennirnir væru löglega í Írak að berjast gegn hryðjuverkastarfsemi og að stríðið í Íran réttlætti ekki þessa árás. L’adjudant-chef Arnaud Frion du 7ème bataillon de chasseurs alpins de Varces est mort pour la France lors d’une attaque dans la région d’Erbil en Irak.À sa famille, à ses frères d’armes, je veux dire toute l’affection et la solidarité de la Nation.Plusieurs de nos militaires…— Emmanuel Macron (@EmmanuelMacron) March 13, 2026 Ekki er hægt að segja með vissu hvaðan dróninn sem um ræðir kom. Hann gæti hafa komið frá Íran en sveitir sjíta í Írak sem notið hafa stuðnings klerkastjórnarinnar í Íran hafa á undanförnum dögum gert dróna- og eldflaugaárásir gegn Bandaríkjamönnum í Írak.
Frakkland Írak Hernaður Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Stjórnvöld í Washington eru sögð hafa misreiknað sig verulega við skipulagningu aðgerðanna gegn Íran og ekki gert ráð fyrir því að þarlend yfirvöld myndu reynast viljug til að loka Hormuz-sundi. 13. mars 2026 07:53 Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Ísraelsher hefur haldið árásum sínum á suðurhluta Líbanon áfram og hefur nú beint þeim tilmælum til íbúa á stóru svæði sem nær til nokkurra borga og fjölda þorpa að flýja heimili sín og halda norður. 13. mars 2026 06:49 Bandarísk herflugvél fórst í Írak Björgunaraðgerðir eru hafnar eftir að bandarísk herflugvél sem ætlað var að flytja eldsneyti fórst í Írak. Þetta kemur fram í tilkynningu sem yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Miðausturlöndum sendi frá sér í dag. Þar greinir einnig frá því að tvær herflugvélar hafi átt hlut að máli en að önnur þeirra hafi lent heilu og höldnu á meðan hin fórst í vesturhluta Íraks. 12. mars 2026 23:29 Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Mojtaba Khamenei, sem tók nýverið við embætti æðstaklerks Íran af föður sínum, heitir því að halda Hormússundi lokuðu. Hann segir einnig að árásir á nágrannaríki Íran muni halda áfram og þá sérstaklega á bandarískar herstöðvar í þessum ríkjum. 12. mars 2026 14:10 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Sjá meira
Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Stjórnvöld í Washington eru sögð hafa misreiknað sig verulega við skipulagningu aðgerðanna gegn Íran og ekki gert ráð fyrir því að þarlend yfirvöld myndu reynast viljug til að loka Hormuz-sundi. 13. mars 2026 07:53
Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Ísraelsher hefur haldið árásum sínum á suðurhluta Líbanon áfram og hefur nú beint þeim tilmælum til íbúa á stóru svæði sem nær til nokkurra borga og fjölda þorpa að flýja heimili sín og halda norður. 13. mars 2026 06:49
Bandarísk herflugvél fórst í Írak Björgunaraðgerðir eru hafnar eftir að bandarísk herflugvél sem ætlað var að flytja eldsneyti fórst í Írak. Þetta kemur fram í tilkynningu sem yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Miðausturlöndum sendi frá sér í dag. Þar greinir einnig frá því að tvær herflugvélar hafi átt hlut að máli en að önnur þeirra hafi lent heilu og höldnu á meðan hin fórst í vesturhluta Íraks. 12. mars 2026 23:29
Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Mojtaba Khamenei, sem tók nýverið við embætti æðstaklerks Íran af föður sínum, heitir því að halda Hormússundi lokuðu. Hann segir einnig að árásir á nágrannaríki Íran muni halda áfram og þá sérstaklega á bandarískar herstöðvar í þessum ríkjum. 12. mars 2026 14:10