Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Sindri Sverrisson skrifar 17. mars 2026 08:01 Max Dowman skráði sig í sögubækurnar um helgina með marki sínu gegn Everton. Getty/Alex Pantling Pabbi ungu Arsenal-stjörnunnar Max Dowman var hundóánægður með fyrrverandi þjálfara hans sem nýtti sér frægðarsól stráksins eftir markið sem hann skoraði í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Hinn 16 ára Dowman varð yngsti markaskorari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar þegar hann skoraði seinna mark Arsenal í 2-0 sigri gegn Everton. Hann skoraði markið mikilvæga eftir langan sprett við gríðarlegan fögnuð enda um tímamótamark að ræða auk þess sem Arsenal nálgast nú óðfluga langþráðan Englandsmeistaratitil. Skiljanlega hefur mikið verið rætt og ritað um Dowman enda hafði met James Vaughan, sem skoraði sitt fyrsta mark 16 ára og 270 daga gamall, staðið síðan í apríl 2005. Dowman skoraði gegn Everton 16 ára og 73 daga gamall.* Á meðal þeirra sem hafa tjáð sig er Temisan Williams, einn af þeim sem þjálfuðu Dowman í yngri flokkum, en hann mætti sem viðmælandi í útvarpsviðtal í talkSPORT með Ally McCoist og Gabby Agbonlahor í gærmorgun. Williams sagðist vissulega bara vera „lítill hluti af ferðalagi“ Dowman en tókst samt að gera pabbann, Robert Dowman, pirraðan. Ekki einn af frábæru þjálfurunum „Það að Temisan Williams láti eins og hann eigi einhvern þátt í ferðalagi Dowman er virkilega sorgleg tilraun til að mæra sjálfan sig. Ég hef áður beðið hann um að gera þetta ekki en samt mætir hann í Talk Sport þennan morgun...“ skrifaði Robert Dowman á X og bætti við: „Ég man eftir honum með keilur á æfingu nokkrum sinnum en lengra náði það ekki. Við höfum haft svo marga frábæra þjálfara sem við erum þakklátir. Hann er svo sannarlega ekki einn þeirra.“ Bað fjölskylduna afsökunar Williams talaði að sjálfsögðu afar vel um Max Dowman í þættinum en það kætti pabbann ekki neitt. Williams hefur síðan beðist afsökunar á framferði sínu. „Eftir ummæli Rob Dowman í dag: Ég hef rætt við Rob Dowman og beðið hann og fjölskyldu hans afsökunar. Í framtíðinni mun ég ekki ræða um þróun Max Dowman. Ég óska Rob Dowman og fjölskyldu hans velgengni og einskis annars,“ skrifaði Williams á X. *Hafa má í huga að úrvalsdeildin var stofnuð árið 1992 og að ef að horft er til allrar sögu efstu deildar á Englandi þá er Ipswich-maðurinn Jason Dozzell enn sá yngsti til að skora, 16 ára og 57 daga gamall, árið 1984.
Enski boltinn Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira