Þjóðargleði lýst yfir í Venesúela eftir sigur gegn Bandaríkjunum Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. mars 2026 14:32 Lið Venesúela vann Bandaríkjamenn í þeirra íþrótt á þeirra heimavelli. Mary DeCicco/WBCI/MLB Photos via Getty Images Venesúela er heimsmeistari í hafnabolta eftir 3-2 sigur gegn Bandaríkjunum í úrslitaleik í nótt. Þjóðargleði hefur verið lýst yfir af sitjandi forseta Venesúela. Bandaríkjaforsetinn Donald Trump vill hins vegar losna við samkeppnina og gera Venesúela að 51. ríki Bandaríkjanna.
Úrslitaleikurinn litaðist óneitanlega af pólitísku spennunni sem ríkir milli landanna eftir að Bandaríkin réðust inn í Venesúela í janúar og handtóku forsetann Nicolás Maduro. Þrátt fyrir að úrslitaleikurinn færi fram í Miami í Bandaríkjunum var Venesúela meira á heimavelli. Reglulega heyrðist baul þegar Bandaríkin léku sinn leik. Talið er að meirihluti þeirra rúmlegu 36 þúsund áhorfenda sem voru í stúkunni geti rakið ættir sínar til rómönsku Ameríku. Bandaríkin voru þó talin sigurstranglegri, enda er liðið skipað stjörnum og þekktum nöfnum úr MLB deildinni. Venesúela hafði hins vegar komið öllum á óvart með því að komast í úrslitaleikinn en liðið lagði meðal annars ríkjandi heimsmeistara Japan á leiðinni þangað. Donald Trump hafði meira að segja hrósað Venesúelamönnum fyrir vasklega framgöngu. „Þeir líta virkilega vel út. Góðir hlutir að gerast í Venesúela upp á síðkastið, ég velti því fyrir mér hvaða töfrar gætu verið þar að verki. RÍKISSTAÐA, #51, EINHVER?“ skrifaði forsetinn fyrir leik á samfélagsmiðlinum Truth Social. Fólk flykktist út á götur í Caracas, höfuðborg Venesúela, og horfði á liðið vinna heimsmeistaratitilinn. Diko Betancourt/Anadolu via Getty Images Venesúela vann leikinn á endanum 3-2 eftir að hafa komist 2-0 yfir þökk sé heimahafnarhlaupum Maikel Garcia og Wilyer Abreu. Daniel Palencia og Eugenio Suarez tryggðu svo þriðja stigið til að loka leiknum fyrir Venesúela. „Enginn hafði trú á Venesúela, en við erum meistarar. Hvað get ég sagt? Guð er góður,“ sagði Suarez eftir að hafa tryggt sigurinn. TEAM VENEZUELA 🇻🇪CHAMPS 🏆#WORLDBASEBALLCLASSIC pic.twitter.com/1hDTJWcI5V— World Baseball Classic (@WBCBaseball) March 18, 2026 Gríðarleg gleði braust út á leikvanginum í Miami og stuðningsmenn Venesúela fögnuðu þessum óvænta sigri langt fram á nótt. Eins dags vinnustöðvun og þjóðargleði var síðan lýst yfir í Venesúela af sitjandi forsetanum, Delcy Rodríguez. There was absolute jubilation in Venezuela as they watched their country’s victory pic.twitter.com/Qup0TyxB50— Jomboy Media (@JomboyMedia) March 18, 2026 Bandaríkjaforsetinn Trump var snöggur að bregðast við tapinu og birti aðra færslu á Truth Social þar sem hann sagðist vilja gera Venesúela að ríki innan Bandaríkjanna. Burt séð frá pólitíkinni sem því fylgir þá myndu Bandaríkin, með því að innlima Venesúela, allavega losna við einn keppinaut um næsta heimsmeistaratitil í hafnabolta. Bandaríkjamenn hafa þurft að sætta sig við silfrið á síðustu tveimur heimsmeistaramótum í íþróttinni sem þeir fundu upp og eru augljóslega í sárum.
Hafnabolti Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Heimspekingurinn Winston jós úr viskubrunni sínum Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Dagskráin í dag: Enginn Ronaldo í Danmörku Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Sjá meira