Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Árni Sæberg skrifar 18. mars 2026 14:55 Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir mikilvægt að bæta stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Vísir/Einar Bankastjóri Landsbankans segir vexti bankans sannarlega hafa lækkað samhliða stýrvaxtalækkunum undanfarinna mánaða. Framboð bankans sé aftur á móti gjörbreytt eftir Vaxtadómana svokölluðu og því erfitt að bera saman vexti nýrra lána fyrir og eftir dómana. Tölur sem formaður Starfsgreinasambandsins vísaði til í gær séu þannig réttar en vart samanburðarhæfar.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sagði í morgun að þrátt fyrir stýrivaxtalækkanir í fyrra væru vextir viðskiptabankanna þrátt fyrir þær enn hærri en þeir voru við gerð stöðugleikasamninganna svokölluðu. Ljótt að plata Þannig rak hann að við gerð stöðugleikasamninganna hefðu óverðtryggðir vextir hjá Landsbankanum verið 10,75 en eftir stýrivaxtahækkun dagsins verði þeir 10 prósent. Þá hefðu verðtryggðir vextir hjá sama banka verið fjögur prósent þegar samið var en eftir hækkun dagsins fari þeir í fimm prósent. „Þannig að þegar þú tekur bæði óverðtryggðu og verðtryggðu vextina, þá erum við búin að horfa upp á hækkun. Samt eru stjórnvöld að koma fram í fjölmiðlum og minna fólk á að vextir hafi lækkað um tvö prósent og ég verð nú bara að segja, af því að Kristrún sagði þetta síðast í fréttum í gær, Kristrún, það er ljótt að plata. Vextir til almennings hafa verið að hækka og þá er ég fyrst og fremst að tala hér um verðtryggða vexti þar sem fólk hefur verið þvingað yfir í þá aftur og þeir hafa hækkað um eitt prósent frá því að við undirrituðum þessa samninga.“ Tölurnar ekki samanburðarhæfar Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir í samtali við Vísi að þessar tölur sem Vilhjálmur vísar til séu réttar en ekki alveg samanburðarhæfar. „Íbúðalánavextir hafa lækkað um tvö prósent á þessum tíma sem hann er að vísa til. En það hefur líka ýmislegt breyst í núverandi íbúðalánaframboði. Við erum ekki að bjóða í dag sömu lán og við vorum að bjóða þá út af vaxtadómnum en þeir sem voru með lán eins og hann vísaði í á þessum tíma, þeir vextir hafa lækkað sannarlega um tvö prósent og eru 8,75 prósent í dag.“ Meðalveðsetning undir fimmtíu prósentum Nú séu lán í boði sem eru með lægri vöxtum en lánin sem Vilhjálmur vísaði til, lán með föstum vöxtum og lægra veðsetningarhlutfalli. Lægstu vextirnir sem bankinn bjóði upp á í dag séu 8,05 prósent, fastir í fimm ár. „Þetta er sem sagt breytingin sem hefur orðið eftir vaxtadóminn, við getum boðið betri vexti á föstum vöxtum heldur en breytilegum.“ Til þess að njóta lægstra vaxta megi veðsetningarhlutfallið ekki fara yfir 55 prósent en Lilja Björk bendir á að meðalveðsetningarhlutfall í lánasafni bankans sé undir fimmtíu prósentum. „Þannig að þetta á við um fjölda manns.“ „Við erum núna að hringja í og láta fólk vita af því hvaða vextir eru í boði, því þetta er auðvitað eilítill frumskógur. Þannig að við erum að hringja í fólk til þess að það átti sig á því að það er ýmislegt sem hægt er að velja úr.“ Heilmikil áhætta sem þarf að verðleggja Lánin sem Vilhjálmur vísaði til séu aftur á móti á tiltölulega háum vöxtum vegna þess að þau þurfi að fylgja grunnvöxtum Seðlabankans út allan lánstíman, fjörutíu ár. „Þannig að það er heilmikil áhætta sem þarf að verðleggja í því og þetta eru vextir sem eru svona með því hæsta sem við bjóðum og við verðum að birta alla slíka vexti í okkar vaxtatöflu. En við myndum alltaf ráðleggja fólki að taka fasta vexti í eitt, þrjú eða fimm ár. Það eru bestu vextirnir sem við bjóðum.“
Landsbankinn Fjármálafyrirtæki Neytendur Seðlabankinn Efnahagsmál Vaxtamálið Tengdar fréttir Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Hæstiréttur hefur sýknað Landsbankann af öllum kröfum í tveimur málum sem neytendur höfðuðu á hendur bankanum vegna tiltekinna skilmála í lánasamningum. Hæstiréttur taldi skilmálana ólögmæta en að neytendur hefðu ekki orðið fyrir tjóni. „Í fljótu bragði er ég ósammála þessu,“ segir formaður Neytendasamtakanna. 22. desember 2025 14:05 „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Formaður neytendasamtakanna segir sýknu Arion banka af öllum kröfum neytenda í einu vaxtamálanna svokölluðu vera vonbrigði. Málið hafi þó takmarkað fordæmisgildi þar sem það hafi varðað lánasamning sem gerður var fyrir gildistöku núgildandi laga um neytendalán. 10. desember 2025 15:20 Viðbrögð bankanna eftir vaxtamálið vonbrigði Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir það vonbrigði að bankar skáki í skjóli dómsins og hækki vexti sína og þrengi lánaskilmála. Hann segir ekkert í dómi hæstaréttar sem segi til um að bankarnir þurfi þess. 19. nóvember 2025 21:01 Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira
Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Hæstiréttur hefur sýknað Landsbankann af öllum kröfum í tveimur málum sem neytendur höfðuðu á hendur bankanum vegna tiltekinna skilmála í lánasamningum. Hæstiréttur taldi skilmálana ólögmæta en að neytendur hefðu ekki orðið fyrir tjóni. „Í fljótu bragði er ég ósammála þessu,“ segir formaður Neytendasamtakanna. 22. desember 2025 14:05
„Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Formaður neytendasamtakanna segir sýknu Arion banka af öllum kröfum neytenda í einu vaxtamálanna svokölluðu vera vonbrigði. Málið hafi þó takmarkað fordæmisgildi þar sem það hafi varðað lánasamning sem gerður var fyrir gildistöku núgildandi laga um neytendalán. 10. desember 2025 15:20
Viðbrögð bankanna eftir vaxtamálið vonbrigði Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir það vonbrigði að bankar skáki í skjóli dómsins og hækki vexti sína og þrengi lánaskilmála. Hann segir ekkert í dómi hæstaréttar sem segi til um að bankarnir þurfi þess. 19. nóvember 2025 21:01