Neytendur

Hætta að taka við rúm­freku rusli á tveimur stöðvum

Atli Ísleifsson skrifar
Endurvinnslustöð Sorpu við Dalveg í Kópavogi.
Endurvinnslustöð Sorpu við Dalveg í Kópavogi. Sorpa

Endurvinnslustöðvar Sorpu í Jafnaseli í Reykjavík og á Dalvegi í Kópavog munu í lok mánaðar hætta að taka á móti rúmfreku rusli vegna framkvæmda eins og múrbroti, timbri, innréttingum, flísum og ónýtum húsgögnum.

Í tilkynningu segir að aðeins verði tekið á móti almennu rusli sem falli til frá heimilum á þessum stöðvum og verði stöðvarnar í Jafnaseli og á Dalvegi skilgreindar sem litlar endurvinnslustöðvar sem taki á móti þrjátíu flokkum í stað fjörutíu eins og undanfarin ár.

„Áfram verður tekið á móti öllu rusli á stóru endurvinnslustöðvum SORPU í Ánanaustum, Blíðubakka, Breiðhellu og Sævarhöfða. SORPA hefur jafnframt lengt opnunartíma endurvinnslustöðva sinna en þær opna nú allar kl. 09:00 og eru opnar til 19:00 alla daga að undanskilinni endurvinnslustöðinni í Blíðubakka sem opnar kl. 12:00 og lokar kl. 18:30.

Eftirfarandi flokkar verða teknir út við Dalveg og Jafnasel og þurfa íbúar á höfuðborgarsvæðinu að fara með þá flokka á stórar endurvinnslustöðvar:

  • Málað timbur
  • Ómálað timbur
  • Hjólbarðar
  • Flísar
  • Hreinlætistæki
  • Rúðugler
  • Gifs
  • Möl og sandur
  • Heyrúlluplast
  • Grófur úrgangur eins og ónýt húsgögn og rúmdýnur
  • Stórir málmhlutir eins og ónýt reiðhjól og gasgrill

Haft er eftir Gunnari Dofra Ólafssyni, sviðsstjóra þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu að markmið breytinganna sé að einfalda móttöku, stytta biðtíma og bæta nýtingu á starfsvæði stöðvanna á Dalvegi og í Jafnaseli.

„Endurmörkun stöðvanna byggir á vinnu starfsfólks SORPU og sveitarfélaganna sem að henni standa, og stjórn SORPU. Stöðvarnar hafa um nokkra hríð verið of litlar til að taka á móti öllum þeim gestum sem á þær koma, og þarf því að takmarka þann fjölda flokka sem tekið verður á móti á þeim. Stöðvarnar hafa verið í rekstri frá árinu 1991, og var þá ætlað að taka á móti átta flokkum.“

Vegna þessara breytinga verða endurvinnslustöðvarnar í Jafnaseli og Dalvegi lokaðar þann 30. mars næstkomandi og opna aftur í nýrri mynd 31. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×