Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Tómas Arnar Þorláksson skrifar 18. mars 2026 21:01 Árásin átti sér stað í bílakjallaranum undir Höfðatorgi. vísir/vilhelm Hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi er rannsökuð sem tilraun til manndráps en þar var eggvopni og kylfum beitt ásamt því að ekið var á einn brotaþola. Samkvæmt heimildum fréttastofu var um uppgjör í undirheimunum að ræða en tuttugu til þrjátíu manns komu saman í bílastæðahúsinu.
Maður liggur á gjörgæslu með þó nokkra áverka eftir alvarlega hópárás sem varð í bílakjallara undir Höfðatorgi í Borgartúni aðfaranótt þriðjudags. Miðlæg deild lögreglunnar rannsakar málið sem tilraun til manndráps. Um umfangsmikla rannsókn er að ræða og er hún á viðkvæmu stigi að sögn lögreglu. Í spilaranum hér að neðan má sjá bílakjallarann þar sem atvikið átti sér stað. Samkvæmt heimildum fréttastofu var um tvo hópa að ræða sem lentu saman bílakjallaranum. Þegar mest lét voru um 20 til þrjátíu manns saman komnir þar. Samkvæmt upplýsingum var um einhvers konar uppgjör að ræða meðal aðila úr undirheimunum. Lögreglan rannsakar nú hvort átök hafi brotist út vegna skuldar og reynir að ná utan um hvers konar uppgjör hafi verið að ræða. Eggvopni og kylfum var beitt við árásina. Þá var ökutæki ekið á þann sem slasaðist mest í árásinni. Sjö voru upprunalega handteknir en samkvæmt lögreglu eru brotaþolar þrír. Flestir aðilar málsins eru erlendir ríkisborgarar en hluti þeirra hefur dvalið í aðeins skamma stund hér á landi. Fimm karlmenn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna árásarinnar í gærkvöld. Fjórir voru úrskurðaðir í varðhald til föstudags en einn í vikulangt varðhald. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er hópasöfnun tengd undirheimunum nokkuð algeng í umræddum bílakjallara á kvöldin og virðist færast í aukana. Lögreglan vinnur nú að því að safna saman myndefni úr öryggismyndavélum á svæðinu ásamt því að sanka að sér fleiri gögnum.
Lögreglumál Reykjavík Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira