Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs

Fréttamynd

„Vina­legt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun

Íslenskur karlmaður sem særðist lífshættulega í Höfðatorgsmálinu segist hafa mætt á vettvang til að ræða við mann sem hann segir hafa rænt fólk víða um bæinn. Einn þriggja ákærðu fyrir tilraun til manndráps heldur því fram að hluturinn sem hann sást halda á hafi verið afrískur tannbursti en ekki hnífur, eins og lögregla telur.

Innlent
Fréttamynd

Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann

Snör handtök lögreglu eru talin hafa skipt sköpum í Höfðatorgsmálinu svokallaða. Mannslíf var í húfi eftir að ekið var kröftuglega á karlmann og hann síðar stunginn þar sem hann lá í blóði sínu. Maðurinn er kominn úr lífshættu. Ellefu hafa verið handteknir í tengslum við málið.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að ekkert bendi til þess að menn, sem handteknir voru í tengslum við alvarlega líkamsárás í Túnunum í Reykjavík í síðustu viku hafi tengsl við Hamas-samtökin þvert á það sem fullyrt var í umfjöllun Morgunblaðsins í morgun. 

Innlent
Fréttamynd

Sleppt úr haldi eftir hóp­árásina á Höfða­torgi

Fjórum karlmönnum sem handteknir voru í tengslum við alvarlega hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi í Reykjavík hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Einn er enn í gæsluvarðhaldi en ekki var farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum. 

Innlent
Fréttamynd

Upp­gjör í undir­heimunum undir Höfðatorgi

Hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi er rannsökuð sem tilraun til manndráps en þar var eggvopni og kylfum beitt ásamt því að ekið var á einn brotaþola. Samkvæmt heimildum fréttastofu var um uppgjör í undirheimunum að ræða en tuttugu til þrjátíu manns komu saman í bílastæðahúsinu.

Innlent
Fréttamynd

Til­raun til manndráps í bílakjallara í Borgar­túni

Alvarleg hópárás sem átti sér stað í bílakjallara í Borgartúni aðfaranótt þriðjudags er rannsökuð sem tilraun til manndráps og er komin á borð miðlægrar deildar lögreglunnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu var eggvopni og kylfum beitt við árásina.

Innlent
Fréttamynd

Yfir­heyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld

Sjömenningarnir sem handteknir voru í nótt í tengslum við stórfellda líkamsárás verða yfirheyrðir í dag. Gera má ráð fyrir að yfirheyrslurnar taki nokkurn tíma og standi jafnvel yfir fram á kvöld, að sögn lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Sjö hand­teknir í tengslum við meiri­háttar líkams­á­rás

Sjö menn voru handteknir í póstnúmerinu 105 í gærkvöldi eða nótt, í tengslum við meiriháttar líkamsárás. Allir voru vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. Þá voru tveir aðrir handteknir í tengslum við aðrar líkamsárásir, báðir í annarlegu ástandi.

Innlent