Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Tómas Arnar Þorláksson skrifar 26. mars 2026 18:44 Árásin átti sér stað í bílakjallara undir Höfðatorgi. vísir/vilhelm Snör handtök lögreglu eru talin hafa skipt sköpum í Höfðatorgsmálinu svokallaða. Mannslíf var í húfi eftir að ekið var kröftuglega á karlmann og hann síðar stunginn þar sem hann lá í blóði sínu. Maðurinn er kominn úr lífshættu. Ellefu hafa verið handteknir í tengslum við málið.
Það var aðfaranótt þriðjudagsins 17. mars sem 26 ára íslenskur karlmaður mætti í bílakjallara Höfðatorgs ásamt karlmönnum frá Alsír og Marokkó. Samkvæmt heimildum fréttastofu áttu þeir fund með Palestínumanni vegna uppgjörs. Einum vísað úr landi Á myndbandsupptöku sem sýnd hefur verið fyrir dómstólum má samkvæmt heimildum fréttastofu sjá þegar jeppa er ekið á mikilli ferð á íslenska karlmanninn sem mun hafa kastast marga metra við bylmingshögg. Í framhaldinu var ráðist að mönnunum þremur með höggum og eggvopnum og hlaut Íslendingurinn lífshættuleg stungusár. Um tuttugu til þrjátíu manns voru á svæðinu þegar mest lét. Lögregla var nokkrar mínútur á vettvang og tókst sérsveitarmanni úr röðum lögreglu að stöðva blæðingu þess sem var ekið á í snarheitum. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur öðrum erlenda brotaþolanum verið vísað úr landi en hann sætti brottvísun áður en til árásarinnar kom. Ellefu manns hafa verið handteknir í tengslum við árásina, flestir frá Palestínu og einn frá Ísrael en hafa búið á Íslandi í skamman tíma. Þá hefur lögregla lagt hald á tæplega hundrað muni í tengslum við rannsókn sína en þar á meðal eru símar, vopn og fatnaður. Fyrstu viðbrögð lögreglu skiptu sköpum Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsókn málsins í algjörum forgangi. Fyrstu viðbrögð lögreglu á vettvangi hafi skipt sköpum og þau hafi orðið til þess að ekki fór verr því blæðingin var mikil. Upphaflega voru fimm úrskurðaðir í gæsluvarðhald og eru tveir þeirra enn á bak við lás og slá. Annar er nýúrskurðaður í fjögurra vikna varðhald en varðhald yfir hinum rennur út á morgun. Ævar Pálmi segir að tekin verði ákvörðun um hvort farið verði fram á lengra varðhald yfir honum á morgun. Mennirnir þrír sem eru lausir úr haldi þurfa á grundvelli útlendingalaga að tilkynna sig hjá lögreglu á hverjum degi. Morgunblaðið hefur sagt hina grunuðu í málinu hafa tengsl við Hamas-samtökin og ýjað að því að meðal þeirra séu hryðjuverkamenn sem alþjóðalögreglan Interpol hafi lýst eftir. Ævar Pálmi segir ekkert við rannsókn málsins hafa komið fram sem tengi nokkurn aðila málsins við Hamas-samtökin. Þá hafi könnun lögreglu ekki leitt í ljós að neinn þeirra sé eftirlýstur.
Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira