Heilbrigðisráðherra fækkar endó-aðgerðum Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 19. mars 2026 08:02 Í gær svaraði heilbrigðisráðherra fyrirspurn minni á Alþingi um fækkun aðgerða vegna endómetríósu. Það er viðeigandi að fyrirspurnin hafi verið á dagskrá þingsins, enda er mars mánuður alþjóðlega tileinkaður vitundavakningu um endómetríósu. Frá því ég tók sæti á Alþingi hef ég reglulega tekið málefni endó-sjúklinga þar upp. Við þekkjum öll einhvern sem þjáist af sjúkdómnum og það er átakanlegt að hlusta á konur lýsa þrautagöngu sinni í heilbrigðiskerfinu. Þjakaðar af verkjum, jafnvel óvinnufærar. Talið er að allt að tíu prósent kvenna glími við sjúkdóminn sem getur valdið ófrjósemi. Mikil bót varð á málum á síðasta kjörtímabili þegar Willum Þór, þáverandi heilbrigðisráðherra, samdi við einkaaðilann Klíníkina um þjónustu við endó-sjúklinga. Með því styttust biðlistar mikið. En nú eru blikur á lofti. Heilbrigðisráðherra hefur minnkað kvóta Klíníkurinnar fyrir árið 2026 töluvert, úr 170 í 111 aðgerðir. Og það þrátt fyrir langa biðlista. Vert er að nefna að samkvæmt svari sem ég fékk á Alþingi við fyrirspurn minni, er meðalkostnaður endó-aðgerða mun lægri á Klíníkinni en á Landspítala – eða allt að helmingi lægri. Biðlistar eftir endó-aðgerðum lengst hjá nýjum heilbrigðisráðherra Biðlistinn á Klíníkinni hefur því lengst mikið og þar bíða konur í mikilli neyð, bæði vegna verkja en líka vegna áhrifa á frjósemi þar sem tíminn vinnur ekki með þeim. Mér skilst reyndar að biðlistar eftir endó-aðgerðum hafi ekki verið lengri árum saman og hafi lengst mikið eftir að nýr heilbrigðisráðherra tók við embættinu. Endósamtökin, réttinda- og hagsmunasamtök, lýstu yfir þungum áhyggjum sl. sumar, þegar heilbrigðisráðherra ákvað að niðurgreiða ekki fleiri aðgerðir vegna endó utan Landspítalans. Endósamtökin undirstrikuðu að það væri mikilvægt að fólk hefði val um hvar það sækti þjónustu og lýstu áhyggjum af lengri biðtíma með tilheyrandi áhrifum á sjúklinga. Skert lífsgæði, varanlegan heilsuskaða, vanvirkni, atvinnuleysi og ófrjósemi. Hlustað sé á endó-sjúklinga Endó-sjúklingar vilja að hlustað sé á þá og upplifa að heilbrigðisráðherra taki ítrekað ákvarðanir um líf þeirra og heilsu án þess að hlusta á raddir þeirra. Að þeirra mati er niðurskurður á aðgerðum einkaaðila skerðing á þjónustu. Sem hún svo sannarlega er. Ég velti því upp hvort heilbrigðisráðherra hugsi um hag endó-sjúklinga við þessa ákvörðun. Eða byrgja gamaldags hugsun og fordómar í garð einkaaðila heilbrigðisráðherra enn einu sinni sýn? Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Kvenheilsa Heilbrigðismál Mest lesið Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Skoðun Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Sjá meira