Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. mars 2026 15:17 Janus Daði átti að fara til Las Vegas í sumar með liði sínu Pick Szeged en ekkert verður úr því. vísir / vilhelm Hætt hefur verið við sýningarmót í handbolta sem átti að fara fram í Las Vegas í Bandaríkjunum í sumar. Stjórnmálaástandið þar í landi er sögð ástæðan og unnið er að því að færa mótið eitthvert til Evrópu.
Janus Daði Smárason og félagar í ungverska liðinu Pick Szeged áttu að taka þátt í „PRO Handball USA“ mótinu í Las Vegas í sumar. Mótið var stofnað í þeim tilgangi að vekja áhuga á handbolta í Bandaríkjunum fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028. Þrjú önnur stórlið höfðu boðað komu sína: Þýskalandsmeistarar Fuchse Berlin, Danmerkurmeistarar Aalborg, og bronslið Meistaradeildarinnar, HBC Nantes frá Frakklandi. Þýsku meistararnir frá síðasta ári áttu að mæta á mótið. Mótið hefur verið flautað af í Las Vegas og Bandaríkjamenn munu því ekki fá tækifæri til að sjá stjörnur á borð við Mathias Gidsel, Aymeric Minne, Sander Sagosen og Juri Knorr spila handbolta. „Við verðum að horfast í augu við það að núverandi stjórnmálaástand skapar hættu á að við lendum í ófyrirséðum áskorunum sem geta haft neikvæð áhrif á verkefnið,“ sagði Mads H. Winther, skipuleggjandi mótsins við DR. Það er samt ekkert sem kemur sérstaklega í veg fyrir það að mótið fari fram í Bandaríkjunum. Ólíkt til dæmis HM í fótbolta eru engin lið eða leikmenn á þessu móti sem Bandaríkin eru beinlínis í stríði við. „Óvissa er bara slæm þegar eitthvað þarf að undirbúa með löngum fyrirvara. Allt sem gefur til kynna óvissu veldur áhyggjum,“ sagði Winther en hann vinnur nú að því að finna nýjan stað fyrir mótið. Líklegast verður það í Þýskalandi, Danmörku, Frakklandi eða Ungverjalandi. Þess má svo geta að Janus Daði er sterklega orðaður við skipti til Barcelona í sumar og hefði því kannski ekkert farið til Las Vegas hvort sem er. Ekkert hefur þó verið staðfest í þeim efnum.
Handbolti Danski handboltinn Franski handboltinn Ungverski handboltinn Ólympíuleikar 2028 í Los Angeles Mest lesið Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti Már getur andað aftur: „Ég bara man eiginlega ekki eftir þessari tilfinningu“ Sport „Leyfið börnunum að vaka“ Fótbolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark Körfubolti Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira