„Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ Hjörvar Ólafsson skrifar 21. mars 2026 17:17 Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var borubrattur eftir leikinn. Anton Brink/Vísir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, tók margt jákvætt út úr tapi liðsins gegn Fylki í úrslitaleik Lengjubikars karla í fótbolta í Árbænum í dag. „
Að mínu mati spiluðum við bara glimrandi vel í þessum leik og sóknarleikurinn var heilt yfir bara mjög góður. Við réðum lögum og lofum þar til við verðum einum leikmanni færri og í raun ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR. „Þeir náðu að særa okkur þegar við fórum hátt með liðið og annað markið þeirra og rauða spjaldið er fylgifiskur þess að ég er að biðja Arnar Frey um að standa hátt á vellinum. Ég tek það bara á mig. Við tökum hins vegar margt jákvætt með okkur inn í komandi verkefni,“ sagði Óskar Hrafn. „Við sýndum karakter að koma til baka eftir að hafa fengið blauta tusku í andlitið í uppbótartíma seinni hálfleiks. Það er dýrmætt fyrir þróun þessa liðs að hafa upplifað þessa reynslu, rísa upp og fyrir Sigurð Brekar að koma okkur inn í vítaspyrnukeppnina á ögurstundu,“ sagði hann. „Mér finnst liðið hafa þroskast umtalsvert síðan síðasta haust og bragurinn á liðinu góður. Liðið er í góðu líkamlegu formi og orkustigið í liðinu hefur verið hátt lungann úr undirbúningstímabilinu. Við spilum æfingaleik við Breiðablik næsta laugardag og svo tekur bara við bikar og deild,“ sagði Óskar um það sem er handan við hornið hjá KR.
Lengjubikar karla KR Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira