Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 21. mars 2026 22:09 La Datcha er í eigu fyrrverandi milljarðamærings. Getty Glæsisnekkju rússneska skattsvikarans Oleg Tinkov var meinuð hafnarkoma á Akureyri fyrr í dag á grundvelli þvingunaraðgerða varðandi Rússland sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja. Landhelgisgæslan greinir frá þessu í fréttatilkynningu.
Þar segir að ákvörðunin byggi á þeim hluta þvingunaraðgerðanna sem kveði á um að skip sem sigldi undir rússneskum fána og hefur skipt um fánaríki eftir 24. febrúar 2022 sé óheimill aðgangur að höfn í ríki á EES svæðinu. Vísir fjallaði fyrr í dag um snekkjuna La Datcha og Tinkov, eiganda hennar, fyrrverandi milljarðamæring sem var sakfelldur fyrir skattsvik árið 2021 og gert að greiða rúmlega fimm hundruð milljóna dollara sekt, rúmlega 62 milljarða króna. Um er að ræða 77 metra langa snekkju á sex hæðum. Á henni er þyrlupallur og um borð eru tveir snjósleðar og fjórar sæþotur. Sigldi undir rússneskum fána Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að á fimmtudag hafi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar borist komutilkynning frá snekkjunni sem siglir undir fána Panama. Snekkjan hafi verið á leið frá Istanbúl til Akureyrar með 26 manns um borð. „Við nánari skoðun kom í ljós að skipið sigldi undir rússneskum fána frá apríl 2021 til september 2022. Í kjölfarið sendi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar erindi á skipið þar sem óskað var eftir upplýsingum og staðfestingu þess efnis að skipið hafi siglt undir rússneskum fána þar til í september 2022,“ segir í tilkynningu. Nafn snekkjunnar er ekki tilgreint í tilkynningunni en samkvæmt heimildum fréttastofu er um snekkju Tinkov að ræða. Þá segir að ljóst hafi þótt að lokinni gagnaöflun að skipið hafi siglt undir rússneskum fána á fyrrgreindu tímabili og á þeim grundvelli hafi Landhelgisgæsla Íslands tilkynnt skipstjóra snekkjunnar að henni væri meinuð hafnarkoma á Akureyri. Landhelgisgæsla Íslands og utanríkisráðuneytið hafi verið í samskiptum vegna málsins sem er í vinnslu.
Akureyri Landhelgisgæslan Umferð Hafnarmál Rússland Mest lesið Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Sjá meira