Á rúntinum með andefni Kjartan Kjartansson skrifar 24. mars 2026 11:18 Flutningabílinn sem flytur andróteindirnar til og frá CERN utan við Genf í Sviss. AP/Jamey Keaten Vísindamenn við Kjarnorkurannsóknaráð Evrópu (CERN) reyna nú í fyrsta skipti að flytja andefni með flutningabíl. Flutningarnir eru vandaverk þar sem bæði andefnið og hefðbundið efnið tortímist komist það í snertinu við hvort annað. Engin hætta er þó sögð á ferðum.
Til þess að flytja um það bil hundrað andróteindir hálftíma leið frá Stóra sterkeindahraðli CERN og til baka þurfti ærna fyrirhöfn. Andefnið er geymt í sérstöku hylki sem vegur heilt tonn. Inni í því er eindunum haldið í lofttæmi og sterkir seglar sem eru kældir niður í að nálgast alkul halda þeim svífandi í hylkinu svo þær snerti ekki veggi hylkisins og eyðist. Endanlegur tilgangur tilraunarinnar, sem lýkur í dag, er að gera vísindamönnunum fært að flytja andefni frá sterkeindahraðlinum sem framleiðir þær á rannsóknarstofu í Düsseldorf í Þýskalandi, að sögn AP-fréttastofunnar. Engin hætta stafar af tilrauninni enda er massi andróteindanna innan við hundrað vetnisfrumeinda. Vísindamennirnir segja að það versta sem gæti gerst sé að þeir glati verðmætum farminum. Komist andefnið í snertingu við veggi hylkisins ef flutningabíllinn bremsar skyndilega eða keyrir yfir holu í malbikinu verði orkan sem losnar þar eindirnar tortímast of lítil þess að nokkur geti greint hana án nákvæmra mælitækja. Höfuðverkur fyrir eðlisfræðinga Andefni er nokkurs konar hliðstæða „hefðbundins“ efnis en með gagnstæða hleðslu. Nær allar efniseindir í alheiminum eru taldar eiga sér slíka andstæðu. Þetta gagnkvæma ofbeldissamband efnis og andefnis skapar höfuðverk fyrir eðlisfræðinga og staðallíkan þeirra af alheiminum. Það gerir ráð fyrir að efni og andefni hefði átt að myndast í jöfnum hlutföllum við Miklahvell. Ef sú hefði verið raunin ætti ekkert efni að vera í alheiminum þar sem efni og andefni hefðu átt að núlla hvort annað út. Sú staðreynd að þú ert að lesa þessa málsgrein er staðfesting á að meira hlýtur að hafa myndast af efni en andefni og það getur staðallíkanið ekki skýrt. Eðlisfræðingar áætla að að fyrir hvern milljarð af pörum efnis- og andefniseinda hafi orðið til ein auka efniseind. Hentar illa til rannsókna Andróteindir eru framleiddar í tilraunastöð CERN í Sviss með því að skjóta róteindageisla á málmstykki. Við árekstur róteindanna við málminn verður til aragrúi ýmissa einda, þar á meðal andróteindir. Tilraunastöðin í CERN er ekki hentug til þess að rannsaka andefnið vegna mikilla segulsviðstruflana sem stafar frá tækjabúnaði hennar. Því vilja vísindamennirnir koma andefninu til Heinrich Heine-háskóla í Düsseldorf þar sem hægt er að að rannsaka þær í betra tómi. Enn er töluvert í land með að þróa tækni til að flytja andefnið. Hylkið sem er notað í tilrauninni í dag á að endast í fjórar klukkustundir. Bílferðin til Düsseldorf tekur hins vegar að minnsta kosti tvöfalt lengri tima.
Vísindi Sviss Tækni Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Sjá meira