Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Toppheilsa 13. apríl 2026 09:38 „Mörg okkar sitja við vinnu í 8 til 10 tíma yfir daginn. Stóllinn er miklu mikilvægari en við getum ímyndað okkur,“ segir Guttormur Brynjólfsson naprapati. Kyrrseta er einn helsti ógnvaldur heilsunnar í dag og talin geta ýtt undir lífsstílsjúkdóma og stoðkerfisvandamál. Guttormur Brynjólfsson naprapati segir lykilatriði að hugsa út í á hverju við sitjum. „
Þegar kemur að heilsunni hugsa flest okkar um mataræðið og hreyfingu en við spáum ekki í stólinn sem við sitjum í. Mörg okkar sitja við vinnu í 8 til 10 tíma yfir daginn. Stóllinn er miklu mikilvægari en við getum ímyndað okkur,“ segir Guttormur, ágætlega þægilegur skrifborðsstóll sé ekki endilega að gera okkur neinn greiða. „Okkur finnst þægilegt að stóllinn haldi utan um okkur en um leið missum við virkni í vöðvum og kúrfan í mjóbakinu fer þegar mjaðmirnar komast ekki í rétta stöðu. Kúrfan í mjóbaki hefur áhrif á kúrfu í hálsi og við endum á að sitja eins og rækjur allan daginn. Það þarf ekki langan tíma í þannig stöðu til að það hafi afleiðingar. Stoðkerfisvandi er stórt heilsufarsvandamál í dag,“ segir Guttormur. Klippa: Kyrrseta er einn helsti ógnvaldur heilsunnar Hverskonar stól eigum við að velja? „Stóllinn þarf að fylgja okkur í hreyfingum þannig að við höldum virkni í vöðvum í baki og maga. SpinaliS skrifborðs- og vinnustólarnir eru hannaðir með þetta í huga. Það má líkja því við að setjast á jógabolta að setjast í SpinaliS. Hann bætir hreyfanleika í mjöðmum og við þurfum beinlínis að halda virkni í bak- og magavöðvum til að geta setið á honum. Við erum í raun að æfa án þess að vita af því og þetta hjálpar okkur að sitja upprétt. Þrýstingi er létt af diskum í hrygg, blóðflæði eykst og við höldum betur einbeitingu. Þessi stóll er einnig mjög þægilegur, það hafa meira að segja verið sett heimsmet í setu á þessum stól,“ segir Guttormur og bætir við að SpinaliS stólarnir séu vinsælir meðal heilbrigðisstarfsfólks. Hefur áhrif á heilsu starfsfólks og framleiðni fyrirtækja Þegar mjaðmirnar komast ekki í rétta stöðu missum við kúrfuna í mjóbaki sem hefur einnig áhrif á kúrfu í hálsi. SpinaliS stóllinn ýtir undir hreifanleika í mjöðmum. „Læknar og tannlæknar sækja mikið í þessa stóla frá okkur, þau skilja virknina. Stórfyrirtæki eins og Google, Amazon og Sony eru einnig stórir viðskiptavinir. Það má alveg benda á að kyrrseta í slæmum stól hefur áhrif á heilsu starfsfólks og ef fyrirtæki ætla sér að spara í stólakaupum fyrir starfsfólk kemur það bara í bakið á þeim. Kostnaður fyrirtækja vegna stoðkerfisvandamála er gífurlegur, aðdragandi stoðkerfisvandamála er oft langur og hefur meðal annars áhrif á framleiðni og almenna vellíðan sarfsfólks. Á Spinalis stólunum færð þú betri virkni í maga og bakvövða og munt því verja stoðkerfið mun betur, blóðflæði og fókus verður einnig betri. Eftir langan dag stöndum við ekki þreytt upp úr stólnum,“ segir Guttormur og bendir á að stólarnir henti einnig börnum og unglingum. „Það hafa verið gerðar rannsóknir með áhrif SpinaliS stóla í skólum sem komu vel út, enda krakkar oft með mikla hreyfiþörf. SpinaliS stólarnir henta einnig unglingum sem eiga það til að sitja lengi við tölvuna til dæmis.“ Sérfræðiráðgjöf við stoðkerfisvanda í Toppheilsu Guttormur er einn þriggja eigenda Toppheilsu sem fer með umboð SpinaliS stólanna hér á landi. „Við erum allir menntaðir Naprapatar með sérþekkingu á anatómíu og taugakerfi. Okkur fannst vanta vettvang fyrir vörur fyrir stoðkerfisvandamál, endurhæfingu og vellíðan en SpinaliS stólarnir eru hluti af góðu vöruúrvali sem við bjóðum upp á hjá Toppheilsu. Við finnum fyrir því að fólk kann vel að meta okkar ráðleggingar og þekkingu.“ „Allar vörur sem við bjóðum upp á í Toppheilsu eiga að hjálpa fólki aðbæta sína liðheilsu og vellíðan. Sem dæmi um aðrar vörur má nefna Thuasne sem er franskt gæðamerki og býður upp á hlífar fyrir stoðkerfið, ökkla, hné og axlir, Groundies barefoot skór, Þýsk gæðavara sem eykur liðleika og styrkir fótinn ásamt fjölda af vörum sem hjálpa til við verkjum, þar á meðal bak- og hálsverki. Við viljum meina að lausnin fyrir þig leynist hjá okkur í Toppheilsu," segir Guttormur að lokum.
Heilsa Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Menning Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Lífið Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Lífið Fleiri fréttir Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur sem sá besti í Evrópu Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Sjá meira