Stuðningsmaður Man. United missir sætið sitt: „Ég er hjálparvana og vonlaus“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. mars 2026 07:02 Ósáttur stuðningsmaður Manchester United sést hér á Old Trafford en myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty/ Steve Paston Stuðningsmanni Manchester United hefur verið vísað úr sæti sem fjölskylda hans hefur haft í næstum áttatíu ár á Old Trafford-leikvanginum til að rýma fyrir svokölluðum VIP-gestum sem greiða þrjú hundruð pund á mann.
Tony Riley, en tengdafaðir hans lék með United undir stjórn Matt Busby, er einn af ellefu hundruð stuðningsmönnum sem neyðast til að færa sig vegna áætlana um auknar tekjur undir stjórn Jim Ratcliffe. Sætunum verður endurúthlutað frá og með næsta tímabili. Okkur finnst þetta óréttlæti „Okkur finnst þetta óréttlæti, ekki bara fyrir okkur heldur alla hina líka,“ segir þessi 76 ára maður í viðtali við Guardian en fjölskylda hans hefur notað sætið óslitið síðan árið 1949. Fyrir 315 pund á mann verður VIP-gestum boðið upp á „nokkur af bestu sætum vallarins“ – og þriggja rétta máltíð á veitingastaðnum Lucky Cat, sem er í eigu Gordon Ramsay, á þeim stað þar sem Riley og fjölskylda hans hafa setið. 315 pund eru meira en 52 þúsund íslenskar krónur. Þrátt fyrir að nafn hans sé grafið í sætið óttaðist Riley að þessi flutningur væri í vændum þegar nágrannahópi sex hundruð stuðningsmanna var hent út á síðasta ári fyrir það sem hann kallaði „rækjusamlokuliðið“ – ástríðulausu fyrirtækjagestina sem Roy Keane gagnrýndi harðlega árið 2000. View this post on Instagram A post shared by Guardian Sport (@guardian_sport) „Þeir eyða meiri tíma í að taka sjálfsmyndir en nokkuð annað. Þetta eru ekki harðkjarnastuðningsmenn,“ segir Riley. Á móti nauðungarflutningum stuðningsmanna Stuðningsmannasamtök Manchester United (Manchester United Supporters Trust) hafa sagt að þau hafi alltaf verið á móti nauðungarflutningum stuðningsmanna og að „það sé sérstaklega nístandi að vera fluttur til fyrir enn fleiri fyrirtækjasæti“. Talsmaður samtakanna sagði það „mikið áhyggjuefni“ að fjölskyldur og stærri hópar gætu tvístrast við flutningana og hvatti félagið til að vinna með þeim sem verða fyrir áhrifum. Tólf hundruð miðar Einnig eru áhyggjur af því að með því að afhenda þessum svokölluðu VIP-gestum um tólf hundruð miða á hverju ári þurfi þeir sem eru á biðlista eftir ársmiða, og hafa greitt hundrað punda innborgun, að bíða enn lengur eftir sæti. Félagið hefur brugðist við og segist skuldbundið til að halda fjölskyldum og hópum saman við flutningana sem það viðurkenndi að væru óþægilegir og gætu haft tilfinningaleg áhrif á stuðningsmenn.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Fleiri fréttir Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira