„Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Árni Sæberg skrifar 25. mars 2026 15:57 Sigmundur mætti með Morgunblað dagsins í ræðustól. Vísir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, nýtti liðinn störf þingsins á þingfundi dagsins til þess að gagnrýna fréttaflutning Morgunblaðsins harðlega. Tilefnið er frétt blaðsins um að menn með tengsl við Hamas-samtökin væru meðal handtekinna vegna alvarlegrar líkamsárásar í bílakjallara Höfðatorgs á dögunum. Lögreglan segir ekkert hæft í þeim staðhæfingum blaðsins.
Í Morgunblaði dagsins og á Mbl.is segir að hluti þeirra sem handteknir voru eftir alvarlega líkamsárás aðfararnótt þriðjudagins 17. mars í bílakjallara Höfðatörgs hefðu tengsl við Hamas. Þá sagði að í farsímum þeirra hefði fundist myndefni sem sýni þá meðhöndla fjölskotariffla af gerðinni AK-47 og að einhverjir þeirra væru eftirlýstir af Interpol. Á þriðja tug manna tókust þar á, meðal annars með eggvopni og kylfum, auk þess sem ekið var á einn. Áður hafði verið greint frá því að samkvæmt heimildum Vísis hafi verið um uppgjör í undirheimum að ræða. Þá herma heimildir Vísis að flestir þeirra sem voru viðloðnir þessi átök séu erlendir ríkisborgarar og hluti þeirra aðeins dvalið skamma stund á Íslandi. Lögreglan vísar staðhæfingum á bug Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sá sig svo knúna til þess að senda frá sér yfirlýsingu vegna málsins í hádeginu. „Vegna umfjöllunar Morgunblaðsins og Mbl.is um rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík í síðustu viku vill embættið taka sérstaklega fram að á þessu stigi bendir ekkert til þess að þeir sem hafa verið handteknir í málinu hafi tengsl við Hamas-samtökin. Þá er það enn fremur rangt að hinir sömu séu á lista alþjóðalögreglunnar yfir grunaða hryðjuverkamenn. Rannsókn málsins er annars í fullum gangi og er í algjörum forgangi hjá embættinu. Hún er mjög viðamikil og tímafrek eftir því, en tveir sitja nú í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar,“ sagði í tilkynningunni. Vandaði um við Moggann „Frú forseti. Mig langar að velta fyrir mér á hvaða vegferð Morgunblaðið er í blaðamennsku sinni. Í dag skellir það á forsíðu sína með stríðsletri að Hamas-liðar hafi verið í einhverjum aðgerðum á Höfðatorgi. Þetta er gert með stríðsetri, sýnist mér. Það er enginn skrifaður fyrir þessari frétt og það er heldur enginn fótur fyrir henni. Lögreglan á Íslandi hefur sagt þetta vera rangt. Enginn fótur er fyrir fréttinni. Hún er röng,“ sagði Sigmundur Ernir undir liðnum störf þingsins á þingfundi dagsins, sem hófst klukkan 15. Hvað fréttaflutningur Morgunblaðsins kemur störfum þingsins við skal ósagt látið. Teikni upp þá mynd að ógn stafi af öllum Palestínumönnum Þá sagði Sigmundur Ernir að fréttin hefði ekki fyrr birts en einn af starfsmönnum Morgunblaðsins hefði farið að „fimbulfambla“ um það hvort ekki bæri að rannsaka íslensk hjálparsamtök sem hafi komið palestínsku flóttafólki í skjól á Íslandi og hvort yfirleitt ætti ekki að flæma allt palestínskt flóttafólk úr landi vegna þess að öryggi borgaranna væri númer eitt. Þar vísar hann til skrifa Stefáns Einars Stefánssonar, blaðamanns Morgunblaðsins, á Facebook í morgun. „Það er sem sé verið að teikna upp þá mynd að það stafi ógn af öllum palestínskum flóttamönnum sem hafa leitað skjóls á Íslandi. Það er tilgangur þessarar fréttar og þess sem hefur verið skrifað í eftirmála hennar. Frú forseti. Þetta er beinlínis hættulegt. Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg. Hún byggir á svo veikum heimildum að lögreglan á Íslandi þarf að draga hana til baka. Lögreglan á Íslandi þarf að draga til baka fréttaflutning Morgunblaðsins um Palestínumenn á Íslandi. Svona er komið fyrir blaðamennsku hér á landi, nánar tiltekið uppi í Hádegismóum. Þetta er hættulegt. Þetta eykur ekki öryggi íslenskra þegna,“ sagði Sigmundur Ernir og uppskar Heyr heyr úr þingsal.
Samfylkingin Alþingi Fjölmiðlar Flóttafólk á Íslandi Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Sjá meira