Keflavíkurkonur skutu Stjörnuna á kaf og þessi lið mætast í úrslitakeppninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. mars 2026 20:52 Thelma Dís Ágústsdóttir og Sara Rún Hinriksdóttir voru báðar flottar í kvöld. Vísir/Diego Keflavik tryggði sér sjötta sætið í Bónusdeild kvenna í körfubolta með stórsigri á Stjörnunni í óopinberum úrslitaleik um sjötta sætið í kvöld. Tindastóll nýtti sér þetta tap Garðabæjarliðsins og náði sjöunda sætinu eftir sannfærandi sigur á Hamar/Þór. Keflavík vann 90-57 sigur á Stjörnunni en Tindastóll vann 90-68 sigur á Hamar/Þór í Síkinu á Sauðárkróki. Keflavíkurkonur hafa ekki verið alltof sannfærandi í vetur en þær sýndu í kvöld að þær verða stórhættulegar í úrslitakeppninni. Stjörnukonur voru sex stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 21-15, en Keflavik vann annan leikhlutann 22-8 og þriðja leikhlutann 39-18. Eftir það var engin spurning um sigurvegara. Sara Rún Hinriksdóttir var frábær með 22 stig og 5 stoðsendingar á 23 mínútum og Thelma Dís Ágústsdóttir hitti úr sex af átta þriggja stiga skotum sínum og endaði með 20 stig á 23 mínútum. Keishana Washington bætti við 13 stigum og 5 stoðsendingum. Eva Wium Elíasdóttir var atkvæðamest hjá Stjörnunni með 16 stig og Stina Almqvist skoraði 14 stig. Tindastólskonur voru sjö stigum yfir í hálfleik, 42-35, og keyrðu síðan yfir gestina með því að vinna þriðja leikhlutann 29-12. Madison Anne Sutton gældi við þrefalda tvennu með 25 stigum, 11 fráköstum og 9 stoðsendingum. Marta Hermida skoraði 26 stig og Roselis Silva var með tíu stig og þrettán stoðsendingar. Inga Sólveig Sigurðardóttir var stigahæsti íslenski leikmaður liðsins með tíu stig. Jóhanna Ýr Ágústsdóttir var með 17 stig og fimm þrista fyrir Hamar/Þór og Mariana Duran var með 15 stig. Jadakiss Guinn og Jovana Markovic skoruðu báðar tólf stig. Þessi úrslit þýða að þessi lið mætast í átta liða úrslitunum: Haukar-Stjarnan Njarðvík-Tindastóll KR-Keflavík Valur-Grindavík Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Stjarnan Tindastóll Hamar Þór Þorlákshöfn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Körfubolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Fleiri fréttir „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Sjá meira
Keflavík vann 90-57 sigur á Stjörnunni en Tindastóll vann 90-68 sigur á Hamar/Þór í Síkinu á Sauðárkróki. Keflavíkurkonur hafa ekki verið alltof sannfærandi í vetur en þær sýndu í kvöld að þær verða stórhættulegar í úrslitakeppninni. Stjörnukonur voru sex stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 21-15, en Keflavik vann annan leikhlutann 22-8 og þriðja leikhlutann 39-18. Eftir það var engin spurning um sigurvegara. Sara Rún Hinriksdóttir var frábær með 22 stig og 5 stoðsendingar á 23 mínútum og Thelma Dís Ágústsdóttir hitti úr sex af átta þriggja stiga skotum sínum og endaði með 20 stig á 23 mínútum. Keishana Washington bætti við 13 stigum og 5 stoðsendingum. Eva Wium Elíasdóttir var atkvæðamest hjá Stjörnunni með 16 stig og Stina Almqvist skoraði 14 stig. Tindastólskonur voru sjö stigum yfir í hálfleik, 42-35, og keyrðu síðan yfir gestina með því að vinna þriðja leikhlutann 29-12. Madison Anne Sutton gældi við þrefalda tvennu með 25 stigum, 11 fráköstum og 9 stoðsendingum. Marta Hermida skoraði 26 stig og Roselis Silva var með tíu stig og þrettán stoðsendingar. Inga Sólveig Sigurðardóttir var stigahæsti íslenski leikmaður liðsins með tíu stig. Jóhanna Ýr Ágústsdóttir var með 17 stig og fimm þrista fyrir Hamar/Þór og Mariana Duran var með 15 stig. Jadakiss Guinn og Jovana Markovic skoruðu báðar tólf stig. Þessi úrslit þýða að þessi lið mætast í átta liða úrslitunum: Haukar-Stjarnan Njarðvík-Tindastóll KR-Keflavík Valur-Grindavík
Þessi úrslit þýða að þessi lið mætast í átta liða úrslitunum: Haukar-Stjarnan Njarðvík-Tindastóll KR-Keflavík Valur-Grindavík
Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Stjarnan Tindastóll Hamar Þór Þorlákshöfn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Körfubolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Fleiri fréttir „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Sjá meira