Það sem utanríkisráðherra vill ekki segja Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 26. mars 2026 07:32 Utanríkisráðherra mætti á opinn fund utanríkismálanefndar í gær. Fundurinn var haldinn til að afla upplýsinga fyrir þingmenn - og fyrir þjóðina, fyrir boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Fyrirspurnirnar á slíkum fundum eru tímasettar þar sem tíminn er naumur og allir nefndarmenn þurfa að komast að. Ég hafði undirbúið mig vel og bar fram fjórar spurningar til ráðherra en uppskar því miður fá svör. Ráðherrann eyddi tíma nefndarinnar frekar í fyrirlestur um framgöngu stjórnarandstöðunnar á síðasta þingvetri. Ósvaraðar spurningar Það er athyglisvert að skoða hvaða spurningum utanríkisráðherra neitar ítrekað að svara. Annars vegar spurningar varðandi samskipti hennar við fulltrúa ESB. Hins vegar spurningar um hvort og þá hvaða skilyrði ríkisstjórnin muni setja í viðræðunum við ESB, komi til þeirra. Ég benti á að orðin „forræði yfir auðlindum“ kæmu bara fyrir tvisvar í tillögu ráðherra um atkvæðagreiðsluna og aðeins sem tilvitnun í tillögu Jóhönnu-stjórnarinnar, ekki sem ófrávíkjanlegt skilyrði þessarar ríkisstjórnar. Sérstaklega væri tekið fram að þau væru aðeins „til hliðsjónar“ og markmiðin þurfi að endurskoða. Full og varanleg yfirráð í dag Utanríkisráðherra bægði hins vegar enn á ný frá sér spurningum um skilyrði þessarar ríkisstjórnar í viðræðum við ESB og hún var ekki tilbúin að lýsa því yfir að skilyrði ríkisstjórnarinnar væru „full og varanleg yfirráð“ yfir auðlindum Íslands. Hvað skyldi það annars vera í orðunum „full og varanleg yfirráð“ sem stendur í utanríkisráðherra Íslands? Það eru einmitt yfirráðin sem við höfum í dag og alveg frá því að við urðum sjálfstæð, fullvalda þjóð. Stendur til af hálfu þessarar ríkisstjórnar að semja um breytingu þar á? Pólitískar æfingar ráðherra Ráðherrar mæta fyrir þingnefndir til að svara spurningum nefndarmanna sem þar sinna eftirlitsskyldum sínum gagnvart framkvæmdavaldinu. Það er grundvallaratriði þrískiptingar ríkisvaldsins. Fastanefndir þingsins eru ekki svið pólitískrar æfingar ráðherra. Þar ber ráðherrum að svara spurningum sem lagðar eru fyrir þá. Annað er virðingarleysi gagnvart Alþingi, hlutverki þingmanna og sjálfu lýðræðinu. Það er létt verk að tala um lýðræðisveislur og traust til þjóðarinnar. Ef ráðherrar svara hins vegar ekki, snúa út úr spurningum og veita ekki umbeðnar upplýsingar, ekki einu sinni á opnum nefndarfundum frammi fyrir alþjóð, hljóta að vakna upp spurningar um það sem ekki er sagt. – Hvað býr að baki? Hlýtur einmitt það ekki að vekja fólk og fjölmiðla til umhugsunar? Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar