Bjóða út framkvæmdir vegna Sæbrautarstokks Lovísa Arnardóttir skrifar 27. mars 2026 15:43 Gert er ráð fyrir garði að ofan. Gláma-Kím og Fractalmind Vegagerðin hefur boðið út verkhönnun á undirbúningsframkvæmdum fyrir Sæbrautarstokk. Framkvæmdum á samkvæmt útboði að vera lokið í nóvember á þessu ári. Tilboðum á að skila fyrir miðjan apríl. Ofan á stokknum er gert ráð fyrir nýjum almenningsgarði.
Um er að ræða gerð verkhönnunargagna, meðal annars fyrir rif, aðstöðusköpun og hjáleiðir fyrir Sæbraut. Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um eins kílómetra löngum kafla sem nær frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Stokkurinn mun þannig tengja saman Vogahverfið sem í dag eru aðskilið með mikilli umferð. Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um 1 km kaflaGláma-Kím og Fractalmind Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að frestur til að skila inn tilboðum sé til klukkan 14:00 þriðjudaginn 14. apríl 2026. Verki skal að fullu lokið 30. nóvember 2026. Í verklýsingu segir að ný gatnamót við Kleppsmýrarveg/Skeiðarvog verði byggð ofan á norðurhluta stokksins með römpum að og frá Sæbraut til norðurs og suðurs. Í Sæbrautarstokk verði tvær akreinar í hvora átt auk blöndunarreina, að- og fráreina og neyðarvasa. Stoðveggir verða við enda stokksins og við rampana. Þá segir að eitt af markmiðunum með stokknum sé að bæta umhverfið í aðliggjandi byggð og tengja betur saman hverfi sem nú eru aðskilin af mikilli umferð. Hvað varðar áhrif með tilkomu stokks segir að samgöngur verði greiðari fyrir akandi og að umferðaröryggi verði meira með frjálsu flæði yfir langan kafla Reykjanesbrautar (Sæbrautar) með afnámi gatnamóta við Súðarvog og mislægum gatnamótum við Kleppsmýrarveg. Hér sést hvar stokkurinn á að liggja. Stokkurinn er græna línan og rauða línan sýnir hvar borgarlínan fer í gegn. Reykjavíkurborg Þá verði einnig greiðari samgöngur fyrir gangandi og hjólandi og aukið umferðaröryggi með tengingum ofan á stokki milli borgarhluta austan og vestan megin við Sæbraut. Þá verði einnig greiðari samgöngur fyrir Borgarlínu og Strætó með mislægri þverun við Sæbraut á sérakreinum. Þá segir að breytingarnar eigi að stuðla að betri hljóðvist auk þess sem þær stuðli að auknu hlutfalli ferða vistvænna samgöngumáta. Þá verði meira pláss til uppbyggingar og borgarþróunar. Ofan á stokknum er gert ráð fyrir nýjum borgargarði með gróðri, göngu- og hjólastígum og góðri aðstöðu til útivistar og samveru. Sæbrautarstokkur er ein af þeim stofnvegaframkvæmdum sem heyra undir Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Tvöfaldur stokkurGláma-Kím og Fractalmind Bæta á aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi á svæðinu.Gláma-Kím og Fractalmind
Sæbrautarstokkur Reykjavík Skipulag Vegagerð Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira