Gauti þrefaldur Íslandsmeistari og Sonja Lí sigurvegari stórsvigsins Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. mars 2026 10:14 Gauti Guðmundsson og Sonja Lí Kristinsdóttir urðu í gær Íslandsmeistarar í stórsvigi. skíðasamband Íslands Skíðamót Íslands í alpagreinum hélt áfram í Hlíðarfjalli í gær þar sem keppt var í stórsvigi. Þá hófst einnig skíðamót Íslands í skíðagöngu. „
Veður var einstaklega gott og aðstæður mun betri en í sviginu í gær. Keppnin var mjög hörð og skemmtileg og oft á tíðum var mjótt á munum milli keppenda,“ segir í tilkynningu mótshaldara. Gauti þrefaldur Íslandsmeistari Gauti Guðmundsson kom fullur sjálfstrausts inn í stórsvigskeppnina, sem nýkrýndur Íslandsmeistari í svigi og alpatvíkeppni. Gauti átti besta tímann eftir fyrri ferð en Matthías Kristinsson úr Skíðafélagi Ólafsfjarðar var annar og Bjarni Þór Hauksson úr Víkingi þriðji. Jón Erik Sigurðsson bætti stöðu sína verulega í seinni ferðinni, náði þriðja besta tímanum og tryggði sér bronsverðlaun eftir að hafa verið í fimmta sæti eftir fyrri ferð. Matthías fékk svo silfrið en Gauti Guðmundsson átti besta tímann og varð Íslandsmeistari í stórsvigi. Gauti varð þar með þrefaldur íslandsmeistari árið 2026, eftir sigra í svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni. Í alpatvíkeppni karla varð Matthías Kristinsson í öðru sæti og Jón Erik Sigurðsson í því þriðja. Sonja best í fyrri og seinni ferð Sonja Lí Kristinsdóttir úr Skíðafélagi Akureyrar átti besta tímann eftir fyrri ferð í kvennaflokki. Nýkrýndur íslandsmeistari í svigi, Þórdís Helga Grétarsdóttir úr Víkingi, var með annan tímann og Eyrún Erla Gestsdóttir, einnig úr Víkingi, með þriðja besta tímann. Í seinni ferð náði Elín Elmarsdóttir Van Pelt Víkingi besta tímanum, sem skilaði henni bronsinu eftir að hafa verið í fjórða sæti eftir fyrri ferð. Þórdís Helga tryggði sér svo silfrið en Sonja Lí Kristinsdóttir náði besta tímanum og stóð uppi sem Íslandsmeistari í stórsvigi. Þórdís Helga vann tvöfalt Í svigi og alpatvíkeppni kvenna varð Þórdís Helga Grétarsdóttir Íslandsmeistari. Sonja Lí Kristinsdóttir varð önnur og Eyrún Erla Gestsdóttir þriðja. Þórdís varð þar með tvöfaldur íslandsmeistari árið 2026, í svigi og alpatvíkeppni. Síðustu keppni alpagreina aflýst Síðasti dagur Skíðamóts Íslands í alpagreinum átti að fara fram í dag með keppni í samhliðasvigi. Vegna veðurs hefur þeirri keppni verið aflýst. Fréttin var uppfærð 10:59. Dagur og Kristrún Íslandsmeistarar í skíðagöngu Í gær hófst skíðamót Íslands í skíðagöngu á Ólafsfirði. „Frábærar aðstæður voru á Ólafsfirði í dag, frost, sól, logn og nægur snjór. Keppt var með hefðbundinni aðferð og ræst út með hópstarti,“ segir í tilkynningu. Dagur Benediktsson og Kristrún Guðnadóttir eru Íslandsmeistarar í skíðagöngu með hefðbundinni aðferð. skíðasamband Íslands Íslandsmeistari í karlaflokki varð Dagur Benediktsson frá Ísafirði, annar varð Einar Árni Gíslason frá Akureyri og þriðji Snorri Einarsson frá Ísafirði. Eyþór Árnason átti frábæran dag og varð fjórði í göngunni og þar með Íslandsmeistari í sínum aldursflokki 17-18 ára. Í kvennaflokki varð Kristrún Guðnadóttir fyrst, María Kristín Ólafsfdóttir varð önnur og þriðja varð Vala Kristín Georgsdóttir. Allar eru þær úr Ulli. Í dag verður keppt með frjálsri aðferð og hefst keppni kl 11:00.
Skíðaíþróttir Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Curtis Jones farinn til Inter Enski boltinn Fleiri fréttir Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Sjá meira