Starf Howe í hættu Valur Páll Eiríksson skrifar 31. mars 2026 12:02 Starf Eddie Howe gæti verið í hættu ef marka má orð framkvæmdastjóra Newcastle. Alex Dodd - CameraSport via Getty Images Framkvæmdastjóri Newcastle segir enga ákvörðun hafa verið tekna um framtíð Eddie Howe í starfi þjálfara liðsins. Staða hans verði tekin til skoðunar í sumar.
Newcastle hefur átt í vandræðum á yfirstandandi leiktíð, þá sérlega heima fyrir, á meðan liðið komst í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu. Alls er óvíst að liðið spili yfirhöfuð í Evrópukeppnum á næsta ári. Framtíð Howe er sögð til skoðunar eftir erfitt 7-2 tap fyrir Barcelona í Meistaradeild Evrópu og súrt 2-1 tap fyrir erkifjendunum í Sunderland á heimavelli fyrir yfirstandandi landsleikjahlé. David Hopkinson, framkvæmdastjóri Newcastle, var spurður út í framtíð Howe er ársreikningur félagsins var opinberaður. Hann sagði engin áform um að fjarlægja hann úr starfi sem stendur. „Eddie er þjálfarinn okkar. Ég býst við frábæru gengi á síðustu vikum tímabilsins og við munum ræða framtíðina þegar þar að kemur,“ sagði Hopkinson sem var þá beðinn um skýrari svör. „Við erum ekki að huga að breytingum eins og sakir standa. Við höfum ekki átt slíkar samræður. Við erum á miðju tímabili, einbeitum okkur að þeim sjö leikjum sem eru eftir og munum ekki breyta því með vangaveltum um hvað geti eða geti ekki orðið næsta sumar,“ segir Hopkinson. Lesa má í orð Hopkinson að staða Howe í þjálfarastólnum verði tekin alvarlega til skoðunar í lok tímabils ef Newcastle-liðinu tekst ekki að snúa genginu við. Howe hefur stýrt liðinu frá árinu 2021 og Newcastle vann í fyrra fyrsta bikar liðsins í 56 ár er það varð enskur deildabikarmeistari. Newcastle situr í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 42 stig en deildin er jöfn og aðeins sjö stig upp í Liverpool í fimmta sæti.
Newcastle United Enski boltinn Mest lesið HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ Fótbolti „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Fótbolti Fleiri fréttir Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Sjá meira