Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Kristján Már Unnarsson skrifar 31. mars 2026 21:03 Gunnar Bender, ritstjóri Sportveiðiblaðsins, í slydduéljum við Elliðaár í dag. Gunnar er jafnframt forfallinn veiðimaður sjálfur. Stefán Jón Ingvarsson Stangveiðitímabilið hefst á morgun, 1. apríl. Ritstjóri Sportveiðisblaðsins býst við að sumsstaðar þurfi veiðimenn að brjóta ís af ánum.
Þegar við hugsum um stangveiði, þá sjáum við gjarnan fyrir okkur grænt gras á árbakkanum, blómskrúð og syngjandi vorfugla. Áköfustu veiðimennirnir láta hins vegar ekki klakastykki og snjóskafla aftra sér frá því að byrja í fyrramálið. Gunnar Bender, ritstjóri Sportveiðiblaðsins, áætlar að milli 250 og 300 veiðimenn verði mættir á árbakka víða um land á morgun. „En það er bara spurningin, eru árnar á ís? Það hefur nefnilega gerst oft þegar það er svona kalt eins og núna að þeir hafa þurft að brjóta ísinn af,“ sagði Gunnar í kvöldfréttum Sýnar þar sem við ræddum við hann í slydduéljum á bökkum Elliðaáa í dag. Það var ekki beint vorlegt við Elliðaár í dag.Stefán Jón Ingvarsson Sjóbirtingsárnar suðaustanlands opnast á morgun en einnig fjöldi annarra svæða sunnanlands og vestan sem og fyrir norðan. „Menn klæða sig bara vel. Þetta er náttúrulega agalegur kuldi núna. Ég meina, að þetta skuli koma núna akkúrat þegar allir eru að fara að veiða, þá er þetta ekki góður tími til að fá þetta. En það er að veiðast oft vel í byrjun. Ef þeir ná að búa til vök á ísinn, þá er hægt að fá fiskinn, því sjóbirtingurinn er í ánni.“ -En þurfa menn ekki að vera ansi miklir veiðinördar til þess að fara af stað við svona aðstæður? „Jú, jú, en þeir eru búnir að kaupa sér veiðileyfi fyrir löngu og þau kosta töluverðan pening. En þeir láta sig hafa það. Auðvitað verður bara að klæða sig vel, það er bara föðurlandið og ekkert annað,“ svarar Gunnar en býst við að mönnum geti orðið kalt á fingrunum. „Það getur nú verið erfitt ef það frýs í öllum lykkjum. Allt er orðið kolfast. Það getur skeð.“ -En er þetta þess virði? „Já, já, já, þetta er alveg þess virði. Þetta er útiveran. Hún er góð,“ svarar Gunnar Bender hlæjandi hér í frétt Sýnar:
Stangveiði Veður Bleikja Tengdar fréttir Gæti orðið kuldaleg veiðiopnun Kuldakastið sem hefur verið á landinu síðustu vikur gæti haft frekar leiðinleg áhrif á fystu daga og kannski vikur af veiðitímanum. 20. mars 2023 08:58 Vorveiðin erfið sökum kulda og hrets Það er ekkert grín að vera veiðimaður á köldu vori eins og núna þegar það skellur á rok og hríð með litlum fyrirvara og öll kunnátta fer fyrir veður og vind. 19. apríl 2017 11:00 Vorveiðin fer vel af stað þrátt fyrir óhagstætt veður Veiðitímabilið hófst í gær og það er nokkuð sama hvar drepið er niður fæti fréttir frá veiðisvæðunum er yfirleitt góðar. 2. apríl 2016 15:30 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Sjá meira
Gæti orðið kuldaleg veiðiopnun Kuldakastið sem hefur verið á landinu síðustu vikur gæti haft frekar leiðinleg áhrif á fystu daga og kannski vikur af veiðitímanum. 20. mars 2023 08:58
Vorveiðin erfið sökum kulda og hrets Það er ekkert grín að vera veiðimaður á köldu vori eins og núna þegar það skellur á rok og hríð með litlum fyrirvara og öll kunnátta fer fyrir veður og vind. 19. apríl 2017 11:00
Vorveiðin fer vel af stað þrátt fyrir óhagstætt veður Veiðitímabilið hófst í gær og það er nokkuð sama hvar drepið er niður fæti fréttir frá veiðisvæðunum er yfirleitt góðar. 2. apríl 2016 15:30