Um mannréttindi allra kvenna Tatjana Latinović skrifar 1. apríl 2026 09:00 Í gær 31. mars, var alþjóðlegur sýnileikadagur trans fólks. Markmiðið með deginum, sem var fyrst haldinn hátíðlegur árið 2009, er að fagna fjölbreytileika trans fólks, lífi þeirra og framlagi, auk þess að minna á þá viðtæku fordóma, útilokun og mismunun sem þau mæta víða. Trans fólk – og sérstaklega trans konur – verða enn fyrir ofbeldi, hatursorðræðu og kerfisbundinni mismunun. Tilvera þeirra er gerð tortryggileg, túlkuð sem einhverskonar lífsstílsval. Fólk í áhrifa- og valdastöðum ber þar mikla ábyrgð; orðræða þeirra sem tala gegn trans fólki grefur undan tilverurétti þeirra og stefnir lífi þeirra í hættu. Nýlegt dæmi um alvarlega mismunun er ákvörðun Alþjóðaólympíusambandsins um að endurvekja umdeild kynjapróf, sem útiloka eiga trans konur og sumar intersex konur frá keppni í kvennaflokki. Slík próf voru lögð af fyrir nær 30 árum vegna skorts á áreiðanleika og brota á friðhelgi og mannréttindum. Að þau skuli nú vera endurvakin árið 2026 endurspeglar alvarlegt bakslag í réttindabaráttu hinsegin fólks og er skýrt dæmi um að konur sæta grófri mismunun sem karlar þurfa ekki að þola. Þrátt fyrir mikla umræðu beinast þessar reglur gegn mjög fámennum hópi íþróttakvenna. Aðeins ein trans kona hefur keppt á Ólympíuleikum frá upphafi og vann hún ekki til verðlauna. Intersex konur, sem nú eiga á hættu enn frekari útskúfun, hafa þegar þurft að undirgangast hormónabælingu til að fá að keppa – þrátt fyrir að hafa alla tíð lifað sem stelpur og konur. Slíkar reglur hafa áhrif langt út fyrir afreksíþróttir: þær fæla trans og intersex fólk frá þátttöku í íþróttum, auka fordóma í samfélaginu og bitna á ungu fólki sem á skilið stuðning og öryggi. Aðalfundur Kvenréttindafélags Íslands var haldinn í gær. Aðalfundurinn samþykkti ályktun sem skorar á Íþróttasamband Íslands að mótmæla ákvörðun Alþjóðaólympíusambandsins um að innleiða þessar umdeildu og orökstuddu reglur sem beinast gegn fámennum hópi íþróttakvenna. Reglurnar ganga þvert á íslensk lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna (150/2020) og lög um kynrænt sjálfræði (80/2019), þar sem skýrt er kveðið á um að einstaklingur sem breytir skráðu kyni sínu njóti allra þeirra réttinda sem því kyni fylgja. Ef ÍSÍ lætur hjá líða að bregðast við, vekur þögn þeirra óhjákvæmilega spurningar um hvort sambandið lúti íslenskri löggjöf í störfum sínum. Kvenréttindafélag Íslands, 119 ára gamalt félag, hefur bæði séð bakslag og miklar framfarir í jafnréttismálum. Barátta okkar hefur alltaf grundvallast á þeirri trú að mannréttindi allra hópa séu óaðskiljanleg – og að árásir á réttindi minnihlutahópa hafi áhrif á okkur öll. Þegar ráðist er á mannréttindi sumra kvenna, litum svo á að ráðist sé á mannréttindi allra kvenna. Kvenréttindafélag Íslands mun áfram standa vörð um réttlæti og jafnrétti, og tryggja að við stöndum réttu megin í sögunni. Höfundur er formaður Kvenréttindafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mannréttindi Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar