„Þá er hann langhættulegasti leikmaður þessarar deildar“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. apríl 2026 14:00 DeAndre Kane ætlaði að gera Grindavík að Íslandsmeisturum og reynir nú í þriðja sinn. Vísir/Diego Grindavík og Njarðvík hefja í kvöld einvígi sitt í átta liða úrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta en þarna mætast liðin í fyrsta og áttunda sæti deildarinnar. Bónus Körfuboltakvöld fór yfir þetta hörkueinvígi sem bíður okkar.
Grindvíkingar eru deildarmeistarar og unnu báða leikina á móti Njarðvík í vetur þar sem Jordan Semple fór á kostum. Sérfræðingar Körfuboltakvölds veltu því fyrir sér hvernig Njarðvík ætlar að stoppa Semple en Stefán Árni Pálsson, umsjónarmaður Körfuboltakvölds, vildi einnig fá álit þeirra á ákvörðun Grindavíkur að skipta út Bandaríkjamanni sínum fyrir úrslitakeppnina. Khalil Shabazz var með 23,1 stig og 5,0 stoðsendingar í leik en var látinn fara og Jeremy Pargo kom í staðinn. Pargo er með 18,8 stig og 8,5 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu sex leikjum sínum með Grindavík. Sýnd veiði en ekki gefin „Fyrir fram myndi maður nú búast við því að Grindavík færi svona tiltölulega þægilega í gegnum þetta en svo er þetta náttúrulega nágrannaslagur og Njarðvíkingar hafa sýnt það svona að þeir eru sýnd veiði en ekki gefin,“ sagði Sævar Sævarsson, sérfræðingur Körfuboltakvölds. Klippa: Körfuboltakvöld um einvígi Grindavíkur og Njarðvíkur „Einn leikmaður er náttúrulega búinn að lita úrslitakeppnina hjá okkur mjög mikið undanfarin tvö tímabil. Það er DeAndre Kane, sem er náttúrulega rosalega mörgum finnst bara vera besti leikmaðurinn í deildinni,“ sagði Stefán Árni Pálsson, umsjónarmaður Körfuboltakvölds. Umræðan um Kane snýst oft um hvort hann missi hausinn. Í miklu betra jafnvægi „Það er búið að vera miklu minna af því og mér hefur fundist vera með aðeins meiri yfirvegun hjá honum en hann missir sig endrum og eins,“ sagði Sævar. „Hann hefur verið í miklu betra jafnvægi,“ sagði Stefán. „Enda hefur Grindavíkurliðið verið að spila mjög vel. Ég taldi það ekki vera góða ákvörðun hjá Grindavík að taka inn Pargo fyrr en maður sá hann koma í því formi sem hann kom. Þá held ég líka að með því að hafa hann þá færist meiri ró yfir Kane því það er ekki öll ábyrgðin á honum,“ sagði Sævar. „Hemmi, eru Grindvíkingarnir líklegri til þess að verða Íslandsmeistarar núna með Jeremy Pargo heldur en þegar þeir voru með Khalil Shabazz sem spilaði hörkuvel fyrir Grindavík í vetur,“ spurði Stefán. Önnur vídd með þessum leikmanni „Ég held að það komi bara allt önnur vídd með þessum leikmanni,“ sagði Hermann Hauksson, sérfræðingur Körfuboltakvölds, og segir að Pargo sé betri varnarmaður. „Hann er töluvert betri varnarmaður heldur en Shabazz finnst mér og svo er það styrkleiki hans. Þið hafið séð leiki þar sem stórir menn eru að reyna að bakka niður en þeir hagga honum ekki. Þannig að hann getur dekkað fleiri stærðir heldur en Shabazz gat gert varnarlega, sem er mjög mikilvægt þegar kemur inn í úrslitakeppni,“ sagði Hermann. „Ég held einhvern veginn að Kane pirri sig ekki á honum eins mikið og hann var að pirra sig á Shabazz. Ég held að það sé líka bara verið að sjá til þess að Keane pirri sig sem allra minnst. Og ef það gerist þegar Keane er sem minnst pirraður, þá er hann langhættulegasti leikmaður þessarar deildar,“ sagði Hermann. Það má horfa á alla umfjöllunina um einvígið hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla UMF Njarðvík UMF Grindavík Körfuboltakvöld Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Fleiri fréttir Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Sjá meira