Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar 5. apríl 2026 08:00 Nú styttist óðum í sveitarstjórnarkosningar en þær fara fram þann 16. maí næstkomandi. Alltaf þegar líða tekur að kosningum færist það í aukana að málefnin séu rædd á kaffistofum landsins. Undanfarin ár hef ég hins vegar tekið eftir því að stór hluti minnar kynslóðar virðist ekki hafa mikinn áhuga á pólitík eða sjá hag í því að láta sig stjórnmálin varða. Margir vinir mínir hreinlega ranghvolfa augunum og andvarpa þegar stjórnmál ber á góma. Ég fæ þá setningar í andlitið eins og “Þetta er svo leiðinlegt,” Þetta skiptir engu máli,” eða hreinlega “Hverjum er ekki drullusama?” Bogi Ágústsson eða spænskur hjartaknúsari? Berum þetta aðeins saman við Eurovision. Alla jafna hafa sveitarstjórnarkosningar farið fram í maí, á svipuðum tíma og söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva, og þá kemur alltaf mjög greinilega í ljós að áhugi fólksins í kringum mig hefur verið meiri á söngvakeppninni en á kosningunum. Þetta átti ég stundum erfitt með að skilja þegar ég var yngri. Á meðan jafnaldrar mínír biðu spenntir eftir Eurovision keppninni var ég miklu spenntari fyrir kosningavöku sjónvarpsins. Ég vildi miklu frekar hanga yfir sjónvarpinu með poppskál að hlusta á Boga Ágústsson og Ólaf Þ. Harðarson rýna í stöðuna en að fylgjast með einhverjum hjartaknúsara frá Spáni spígspora um sviðið. Ekki misskilja mig samt. Mér finnst alveg gaman að fylgjast með Eurovision og þegar ég var yngri hafði ég svo sem ekki myndað mér sterkar skoðanir á málefnum líðandi stundar en engu að síður skynjaði ég mjög sterkt að það sem kæmi upp úr kjörkössunum skipti töluvert meira máli fyrir nærsamsamfélagið mitt heldur en hvort Grikkland fengi 12 stig frá Kýpur í söngvakeppninni enn eitt árið. Unga fólkið tekur við En hvernig væri það ef enginn nennti að spá í stjórnmálum? Hver myndi þá sjá til þess að dvalarheimili eldri borgara væru rekstrarhæf eða að hægt væri að malbika í holurnar? (svo ég leyfi mér að vitna í Patrik Jamie úr æði þáttunum) Allt skiptir þetta máli og úr hópi komandi kynslóða þurfa að vera flottir leiðtogar til að taka við keflinu. Það eru blikur á lofti um að þetta sé aðeins að breytast til hins betra. Unga fólkið sem er nýlega komið með kosningarétt er að láta til sín taka og þessi kynslóð virðist heldur betur hafa skoðanir á hlutunum og vilja til að láta verkin tala. Stjórnmálaflokkarnir þurfa að sama skapi að hafa kjark til að tefla fram ungu fólki og leyfa þeim að láta ljós sitt skína. Við í Viðreisn í Árborg þorum svo sannarlega að gefa unga fólkinu sviðið og erum þakklát fyrir að þau vilji taka slaginn með okkur. Á okkar lista er fólk á öllum aldri sem vill vinna að því í sameiningu að gera gott samfélag enn betra. Ein þeirra er Lovísa Lillý Davíðsdóttir en hún er yngsti frambjóðandinn á listanum okkar. Hún varð 18 ára á laugardegi og degi síðar var framboðslistinn okkar kynntur. Hún er því líklega yngsti frambjóðandi landsins í þessum kosningum. Hún og hennar kynslóð munu landið okkar erfa. Höfundur skipar 3.sætið á lista Viðreisnar í Árborg Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun