Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn Valur Páll Eiríksson skrifar 6. apríl 2026 12:53 Guðjón Pétur Lýðsson verður á leikmannaskýrslu ásamt aðstoðarþjálfaranum Óskari Erni Haukssyni þar sem tveimur leikmönnum liðsins var snúið við í Mosfellsbæ vegna lokunar á Kjalarnesi. Mynd/Vísir/Haukar Þjálfararnir Guðjón Pétur Lýðsson og Óskar Örn Hauksson eru á varamannabekk Hauka gegn ÍA í Mjólkurbikar karla í dag þar sem tveimur leikmönnum liðsins var snúið við í Mosfellsbæ vegna færðar. Stjórnarmaður hjá félaginu harmar að stuðningsmenn geti ekki séð leikinn.
Austanstormur gengur yfir landið og um tíma var öllum vegum inn og út af höfuðborgarsvæðinu lokað sökum þess. Tveir leikmenn Hauka, þeir Óliver Þorkelsson og Haukur Darri Pálsson, þurfa að horfa á leikinn heima í sófa þar sem þeim var ekki hleypt upp á Skaga. „Við misstum tvo í Mosó sem komust ekki og við settum í staðinn þjálfarana á bekkinn. Mér skilst að núna sé reyndar búið að opna aftur en þá er leikskýrslan lokuð þannig að því fær líklega ekki breytt,“ segir Jón Erlendsson, formaður meistaraflokksráðs hjá Haukum, í samtali við Vísi. Jón var nokkuð brattur þrátt fyrir áskorun dagsins. Haukar hafi vissulega getað lagt fyrr af stað og komið í gær en því hefði fylgt drjúgur kostnaður við gistingu og fleira. Lögreglan lagði til fyrirmæli að fólk væri ekki á ferðinni í veðrinu en þrátt fyrir það var leik dagsins í Akraneshöllinni ekki hnikað. Formaður meistaraflokksráðs hjá Haukum segir að færsla á leiktíma hafi verið til skoðunar en verst sé að stuðningsfólk fái ekki að sjá leikinn. „Við spurðum að þessari spurningu í gær hvort staðan yrði ekki endurmetin í morgun en það hefur síðan ekkert gerst. En maður veltir því fyrir sér hvers vegna við erum að spila fótboltaleikina,“ segir Jón. Hann vísar þar til stuðningsmanna Hauka sem komast ekki á leikinn. „Maður veltir þessari spurningu upp og við munum örugglega spyrja KSÍ út í það frekar, hvenær er sniðugt að fresta og hvenær ekki. Ég skil alveg að þeir voru undir pressu að halda þessa leiki, að seinka ekki öllu og lenda í vandræðum þar sem Bestu deildarliðin byrja næstu helgi,“ „Það eru fullt af áskorunum þarna. En þessir leikir eru spilaðir út af stuðningsmönnunum en engum öðrum held ég. Ég hefði haldið að það væri hugmyndin í fótbolta og íþróttum almennt,“ segir Jón. Það fer þá fram leikur í húsnæði Hauka þar sem Grindavík og Keflavík munu spila þar bikarleik í dag. Reykjanesbrautin er opin sem stendur en var lokuð lengi vel í morgun. „Við erum í sömu stöðu hérna á Ásvöllum þar sem við erum að hýsa leik Grindavíkur og Keflavíkur. Ég veit ekki hvort neinir áhorfendur komi á þann leik ef allir leikmenn hafa yfirhöfuð komist Reykjanesbrautina,“ segir Jón. Leikur ÍA og Hauka hefst klukkan 13:00 í dag, sem og leikur Grindavíkur við Keflavík. ÍA TV sýnir leikinn í Akraneshöllinni og hann má sjá í spilaranum að ofan.
Veður Haukar Mjólkurbikar karla ÍA Færð á vegum Mest lesið „Ég er bara í brjáluðu skapi“ Íslenski boltinn Infantino veðurtepptur og Spánn hætti við æfingu Fótbolti Saka með þrennu í ótrúlegum bronsleik Fótbolti Búið spil fyrir Messi og félaga? Drake veðjaði á argentínskan sigur Fótbolti Maður dagsins á HM: Stjörnustrákurinn vildi spila meira Fótbolti Vildi fá Nyland fyrir HM: „Það verður ansi erfitt að fá hann núna“ Fótbolti McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Golf „Snerist um að færa þjóðinni besta árangurinn á HM í sextíu ár“ Fótbolti Sjáðu árekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring Formúla 1 ÍBV - KA | Gætu stokkið upp fyrir fjögur lið Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Erfitt að spila svona leiki á milli Evrópuleikja“ ÍBV - KA | Gætu stokkið upp fyrir fjögur lið Finnur til með leikmönnum: „Síðustu mánuðir verið erfiðir“ „Ég er bara í brjáluðu skapi“ Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga „Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verkefna“ „Eina leiðin er upp“ Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Fékk sigur í fimmtugsafmælisgjöf Topplið Lengjudeildarinnar fær liðsstyrk frá Stjörnunni Stórsigur á Seltjarnarnesi en markalaust í Grindavík Viktor Nói lánaður til Njarðvíkur Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé Bríet Fjóla keypt til Þróttar Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Ari Leifsson í Stjörnuna Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Sjá meira