Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Sindri Sverrisson skrifar 6. apríl 2026 19:44 Það skildu allir sáttir eftir góða rimmu Óskars Hrafns og Hödda Magg í Bikarkvöldinu á RÚV 2 og þau Helga Margrét Höskuldsdóttir og Gunnar Birgisson höfðu gaman af. Skjáskot/RÚV Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, og Hörður Magnússon, sérfræðingur RÚV, voru vægast sagt ósammála um hvort markvörður KR hefði átt að fá rautt spjald í bikarsigrinum gegn Val í Egilshöll í kvöld.
Óskar mætti í settið hjá RÚV eftir frekar þægilegan 4-2 sigur og var þá meðal annars spurður út í það þegar markvörður hans, Arnar Freyr Ólafsson, fór í nokkuð djarft úthlaup langt út fyrir eigin vítateig en náði til boltans rétt á undan Tryggva Hrafni Haraldssyni sem lá eftir á vellinum. Ekkert var dæmt á atvikið en Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, fékk gult spjald fyrir mótmæli. Hörður lýsti leiknum og fullyrti strax að Arnar Freyr hefði átt að fá beint rautt spjald. Hann hélt sig svo við þá skoðun í umræðunum eftir leik og var Óskar steinhissa á því: „Hann tekur bara boltann. Hann [Arnar Freyr] nánast snertir hann [Tryggva] ekki,“ sagði Óskar og velti því auk þess fyrir sér hvort Tryggvi hefði ekki verið kolrangstæður hvort sem er. „Ég var ómyrkur í máli í lýsingunni og þessi endursýning staðfestir enn og aftur að þetta er rautt spjald. Hann kemur á blindu hliðina. Þetta er glæfralegt. Vissulega nær hann eitthvað til boltans en tekur manninn niður,“ sagði Hörður. „Ha?! Hann tekur bara boltann Höddi,“ sagði Óskar og trúði vart eigin eyrum. „Hvað er markvörðurinn að þvælast þarna?“ „Átti Tryggvi að hverfa ofan í jörðina?“ spurði Hörður og virtist ekki telja það sama eiga að ganga yfir markvörð sem kominn er langt frá sínu marki, eins og um aðra leikmenn. „Ef að hafsent kemur á ferðinni og skallar boltann, og tekur sóknarmanninn með sér, þá er það ekki aukaspyrna,“ sagði þá Óskar. „En hann er ekki varnarmaður. Hvað er markvörðurinn að þvælast þarna?“ spurði Hörður og þá ákvað Óskar að grípa til líkingamáls til að sýna að það sama ætti yfir alla leikmenn að ganga. „Markvörðurinn er hluti af liðinu“ „Markvörðurinn er hluti af liðinu! Ætlarðu að segja við hann: Þú mátt ekki gera þetta, og ekki þetta? Þetta er eins og að vera með þrjú börn og segja við yngsta barnið: Þú mátt því miður ekki borða með okkur. Þú verður að borða úti á svölum. Auðvitað er markvörðurinn bara hluti af liðinu! Þannig að ég segi: Ekki rautt. Auðvitað er ég ekki hlutlaus. Ég er með KR-gleraugun á mér alla daga,“ sagði Óskar. Þeir Hörður höfðu greinilega gaman af að skiptast á skoðunum og Óskar hló þegar Hörður bað hann að láta eins og hann væri sérfræðingur RÚV að rýna í atvik í leik Belgíu og Hollands. En Óskar sagði að svar sitt þá myndi bara vera það sama: „Vel hreinsað! Vel lesið!“ KR-ingar verða næst á ferðinni á sunnudaginn þegar þeir taka á móti Keflavík í 1. umferð Bestu deildarinnar en Valsmenn taka þá á móti Þórsurum.
Mjólkurbikar karla KR Valur Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira