„Við eigum að hækka verðið á sykri“ Birgir Olgeirsson skrifar 8. apríl 2026 21:32 Tryggvi Helgason barnalæknir segir vandann samspil margra þátta. Sýn Um fimm þúsund börn glíma við offitu á Íslandi í dag og hefur þeim fjölgað um helming frá aldamótum. Barnalæknir segir þetta alvarlegt bráðamál fyrir lýðheilsu þjóðarinnar og kallar eftir gagngerri endurskoðun á líferni fólks og stefnu stjórnvalda.
Hlutfall barna með offitu var undir einu prósenti árið 1960 en jókst hratt á síðustu áratugum. Við aldamót var það komið í fimm prósent en er nú 7,5 prósent.Þetta kom fram í erindi Tryggva Helgasonar barnalæknis á ráðstefnunni Vísindi á vordögum í dag. Að hans sögn liggja skýringarnar víða og vinnur daglegt umhverfi barnafjölskyldna oft gegn heilbrigðum lífsháttum. Pressa á tíma fjölskyldna Tryggvi segir þróunina ekki eiga sér eina skýringu heldur sé um að ræða samspil margra þátta í nútímasamfélaginu. „Það er svo margt sem við erum að gera í samfélaginu sem veldur því að það er meiri pressa á tíma fólks. Það eru samfélagsmiðlar, það er minni tími til að sinna alls konar útiveru, matreiðslu, sitja saman, vera saman, það er minni svefn, það eru alls konar svona þættir, það er bara hreinlega meiri pressa á tíma hjá börnum og foreldrum, sem ég held að sé meginþátturinn.“ Hann segir jafnframt að fæðuumhverfið ýti undir þróunina og að óhollari kostir borgi sig betur. „Auðvitað er líka meiri pressa á að matariðnaðurinn sé að selja ákveðinn mat sem þeir vilja að við kaupum, sem er meiri hagnaður í og þá er oftast minna af næringarefnum og meira af orku í matnum.“ Vill gera hollari kosti sjálfgefnari Að mati Tryggva dugar ekki að fræða fólk eitt og sér heldur þurfi að breyta samfélaginu þannig að hollari kostir verði sjálfgefnari. „Það á að vera óþarft að velja heilsusamlegt. Það á að vera heilsusamlegur matur, heilsusamlegur matur sem þú kaupir fyrst. Ef þú vilt fara að kaupa eitthvað óhollt eða óskynsamlegt, þá á það að vera mjög flókið, erfitt og dýrt.“ Hann segir stjórnvöld geta haft áhrif með einföldum aðgerðum.„Við eigum að hækka verðið á sykri. Við eigum að auðvelda aðgengi að ávöxtum og grænmeti.“
Heilbrigðismál Börn og uppeldi Matur Íþróttir barna Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Sjá meira