Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Árni Sæberg skrifar 9. apríl 2026 10:09 Gabríel Douane gengur inn í dómsal 101 í Héraðsdómi Reykjaness við meðferð eldra máls. Vísir Gabríel Douane Boama játaði óvænt að hafa barið þrjá fangaverði á Litla-Hrauni og notað við það armbandsúr í ágúst árið 2024, þegar aðalmeðferð í máli hans hófst í morgun. Hann vildi þó að ákærunni yrði breytt á þann veg að orðið hnúavopn yrði fellt á brott, sem ákæruvaldið féllst á.
Aðalmeðferð í máli Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og Héraðssaksóknara á hendur Gabríel hófst í morgun en í því hafa þrjár ákærur verið sameinaðar. Vísir fjallaði um eina þeirra á dögunum en í henni var honum gefið að sök þrjú brot gegn valdstjórninni, með því að hafa ráðist á þrjá fangaverði og slegið í höfuð á Litla-Hrauni á föstudegi í ágúst árið 2024. Hann var sagður hafa notað armbandsúr með málmól sem hnúavopn við árásirnar. Þegar aðalmeðferðin hófst í morgun upplýsti verjandi Gabríels að hann vildi játa sök varðandi þá ákæru, að því gefnu að ákæruvaldið féllist á að fella orðið hnúavopn brott. Hann gerði þó ekki athugasemd við að fram kæmi að hann hefði beitt armbandsúrinu við árásirnar. Neitar að hafa andlitsbrotið samfanga Önnur ákæran í málinu varðar meiri háttar líkamsárás gagnvart samfanga Gabríels á Litla-Hrauni. Honum er gefið að sök að hafa veist með ofbeldi að manninum í fangaklefa, slegið hann með krepptum hnefa í andlitið, með þeim afleiðingum að hann hlaut tannbrot, augntóftargólfsbrot, mjúkpartaáverka á vinstra auga og skurð á augabrún. Hann neitar sök og hafnar bótakröfu mannsins, sem nemur 1,5 milljónum króna. Játar og neitar á víxl Síðasta ákæran af þremur er í sex liðum. Gabríel játar sök í fjórum þeirra en þeir varða eina meiri háttar líkamsárás í Hagkaupum í Skeifunni árið 2023 og þrjú fíkniefnalagabrot, með því að hafa haft í fórum sínum smáræði af kannabisefnum og kókaíni. Hinir ákæruliðirnir tveir varða atvik að Álakvísl í Reykjavík í febrúar 2024. Gabríel er gefin að sök hótun, með því að hafa sest inn í bifreið, tekið upp hníf og hótað að leggja til konu. Háttsemin hafi verið til þess fallin að vekja hjá henni ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð. Loks er honum gefið að sök að hafa í sama bíl rænt mann með því að ógna honum með hnífnum og hafa af honum farsíma af gerðinni Apple Iphone 14 Pro Max. Í ákærunni segir að lögreglumenn hafi fundið farsímann í fórum Gabríels þegar þeir höfðu afskipti af honum í sundlauginni að Jaðarsbakka á Akranesi tveimur dögum síðar. Vitni afboðuð Eftir að farið hafði verið yfir breytta afstöðu Gabríels til sakarefnisins komust dómari og flytjendur málsins að þeirri niðurstöðu að óþarft væri að taka skýrslu af fjölda vitna og einkaréttarkröfuhafa. Því einhenti fulltrúi ákæruvaldsins sér í það að afboða vitni, meðal annars fangaverðina þrjá, á meðan nokkuð langt hlé var gert á aðalmeðferðinni. Reiknað er með að skýrslutökum fyrir dómi ljúki að mestu í dag og málflutningur fari fram á morgun.
Dómsmál Fangelsismál Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira