Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Árni Sæberg skrifar 9. apríl 2026 15:58 Gabríel í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar fyrra mál á hendur honum var til meðferðar. Vísir Gabríel Douane Boama, sem sætir ákæru fyrir fjölda brota sem hann játar að mestu, tjáði sig aðeins um tvo ákæruliði af tíu þegar skýrsla var tekin af honum við aðalmeðferð í dag. Í þeim er honum gefið að sök að hafa hótað konu með hnífi og rænt síma af manni á sama tíma. Hann kveðst ekki hafa verið með hníf á sér og hafa óvart tekið símann af manninum en ekki rænt honum.
Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins á hendur Gabríel hófst klukkan 09:15 í morgun og átti að standa yfir í allan dag. Gabríel breytti framburði sínum í upphafi meðferðar og játaði óvænt sök varðandi eina ákæru og hafði þegar játað nokkurn fjölda ákæruliða, líkt og Vísir fjallaði um í morgun. Morguninn fór að miklu leyti í að afboða vitni og einkaréttarkröfuhafa, enda þarf ekki frekari sönnunarfærslu þegar brot hefur verið játað, og breyta dagskrá aðalmeðferðarinnar. Stærsti dómsalur Héraðsdóms Reykjavíkur var nánast fullur en í honum sátu blaðamaður, tveir lögreglumenn og stór hópur nemenda í lögfræðiáfanga við Verslunarskóla Íslands. Nemendurnir fengu lítið fyrir sinn snúð og fóru aftur í skólann eftir að Gabríel hafði gefið skýrslu. Hafi hótað með hnífi og rænt síma Við upphaf skýrslutöku yfir Gabríel var hann spurður út í tvo ákæruliði sem hann hafði ekki játað. Í þeim er honum gefin að sök hótun, með því að hafa sest inn í bifreið, tekið upp hníf og hótað að leggja til konu. Háttsemin hafi verið til þess fallin að vekja hjá henni ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð. Loks er honum gefið að sök að hafa í sama bíl rænt mann með því að ógna honum með hnífnum og hafa af honum farsíma af gerðinni Apple Iphone 14 Pro Max. Í ákærunni segir að lögreglumenn hafi fundið farsímann í fórum Gabríels þegar þeir höfðu afskipti af honum í sundlauginni að Jaðarsbakka á Akranesi tveimur dögum síðar. Fyrrverandi kærasta, vinkona hennar og ókunnugur Spurður út í þetta kvaðst Gabríel ekki hafa hótað neinum með hnífi og engum síma rænt. Hann hefði verið drukkinn eftir að hafa verið úti á lífinu og verið æstur inni í bílnum. Brotaþolar gætu hafa talið að hann væri ógnandi en hann hafi í það minnsta ekki ætlað að hóta þeim. Hann gæti ekki svarað fyrir það hvernig þeir upplifðu atvikið. Þá sagði hann að í bílnum hefðu verið fyrrverandi kærasta hans, vinkona hennar og þriðji maður sem hann þekkti ekki. Hann hefði beðið ókunnuga manninn um að fá að hringja hjá honum, fengið símann hans og þá hafi brotist út rifrildi og hann rokið út úr bílnum. Þannig hefði hann tekið síma mannins óvart. Neitaði að tjá sig Hin ákæran sem Gabríel játar ekki varðar meiri háttar líkamsárás í fangaklefa á Litla-Hrauni. Honum er gefið að sök að hafa veist með ofbeldi að manninum, slegið hann með krepptum hnefa í andlitið, með þeim afleiðingum að hann hlaut tannbrot, augntóftargólfsbrot, mjúkpartaáverka á vinstra auga og skurð á augabrún. Hann neitar sök og hafnar bótakröfu mannsins, sem nemur 1,5 milljónum króna. Gabríel kaus að tjá sig ekki um þann ákærulið við skýrslutökuna og við svo búið var henni lokið.
Dómsmál Reykjavík Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fleiri fréttir Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Sjá meira