Hitti óvart og fékk síðan flautukörfu í andlitið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2026 13:30 Það var mikil dramatík í blálokin enda skiptust liðin oft á að hafa forystuna á síðustu fjórum sekúndunum. Sýn Sport Njarðvíkurkonur tryggðu sér sæti í undanúrslitum Bónusdeildar kvenna í körfubolta með dramatískum hætti í gærkvöldi. Njarðvík vann þá 88-87 sigur á Tindastól og þar með einvígið 3-0.
Liðin kepptust samt við að „vinna“ og „tapa“ leiknum á lokasekúndunum en það er óhætt að segja að síðustu fimm sekúndurnar hafi verið dramatískar í IceMar-höllinni í Njarðvík í gær. Danielle Rodriguez kom Njarðvík yfir í 85-84, úr hraðaupphlaupi fjórum sekúndum fyrir leikslok. Tindastóll tók leikhlé og eftir það skoraði Madison Sutton laglega körfu og fékk víti að auki. Staðan var þá orðin 86-85 fyrir Stólana og aðeins 1,2 sekúndur voru eftir. Sutton virtist síðan ætla að reyna að klikka úr vítinu því þá hefðu Njarðvíkurkonur þurft að fara upp allan völlinn og taka neyðarskot. Klippa: Svakalegar lokasekúndur í einvígi Njarðvíkur og Tindastóls Hún reyndi að klikka á vítaskoti sínu en það gekk ekki betur en svo að boltinn skoppaði á hringnum og þaðan ofan í körfuna. Það mátti sjá á viðbrögðum hennar að hún var svekkt að boltinn skyldi fara ofan í körfuna. Það var ekkert skrýtið því með þessu gaf hún Njarðvíkurkonum líflínu. Njarðvíkurkonur fengu nefnilega leikhlé, gátu fært boltann upp völlinn og auk þess sett upp lokaskot. Þar sýndi Brittany Dinkins snilld sína. Hún fékk frábæra hrindrun frá Danielle Rodriguez, greip boltann eftir innkastið frá Huldu Maríu Agnarsdóttur, snéri sér eldsnöggt við og skoraði magnaða þriggja stiga körfu um leið og leiktíminn rann út. Njarðvíkurkonur fögnuðu gríðarlega en Stólarnir voru komnir í sumarfrí þrátt fyrir hetjulega baráttu. Það má sjá þessar mögnuðu lokasekúndur hér fyrir ofan.
Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík Tindastóll Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Þykja Alpine liðið vera of dýrt Formúla 1 Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira