Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Kristján Már Unnarsson skrifar 9. apríl 2026 21:49 Beinir Johannesen, verðandi lögmaður Færeyja, kynnir samstarfssáttmálann. Kringvarpið Ný landsstjórn Færeyja hyggst hefja viðræður við ríkisstjórn Danmerkur um að Færeyingum verði tryggður sjálfsákvörðunarréttur í öllum málum sem varða Færeyjar. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Þórshöfn í dag þar sem oddvitar kynntu samstarfssáttmálann.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá formenn Fólkaflokksins, Sambandsflokksins og Javnaðarflokksins undirrita samstarfssáttmálann í húsakynnum Lögþingsins en Beinir Johannesen verður yngsti lögmaður í sögu Færeyja, aðeins 29 ára gamall. „Yfirskrift stjórnarsáttmála okkar er ábyrgð, staðfesta og breið sátt og við staðfestum að blokkapólitíkin heyri sögunni til,“ sagði Beinir. Oddvitarnir þrír handsöluðu síðan stjórnarsamstarfið í beinni útsendingu Kringvarpsins. Samstarfssáttmálinn undirritaður. Frá vinstri: Bárður á Steig Nielsen, Beinir Johannesen og Aksel V. Johannesen, en Aksel er föðurbróðir Beinis.Kringvarpið Athygli vekur að Javnaðarflokkurinn skuli velja samstarf við tvo hægri flokka í stjórn sem telja má mið-hægristjórn. „Færeysk stjórnmál þurfa bæði á sáttmálum og breiðri sátt að halda og þess vegna ákváðum við að ganga inn í þetta samstarf,“ sagði Aksel V. Johannesen, formaður Javnaðarflokksins og fráfarandi lögmaður. „Þetta er auðvitað samstarf milli þriggja stórra flokka og af þeim eru tveir borgaralegir flokkar. Og þess vegna er það okkar verkefni að draga þá aðeins til vinstri. Það held ég að hafi tekist, eins og sjá má í stjórnarsáttmálanum,“ sagði Aksel. Aksel V. Johannesen, formaður Javnaðarflokksins og fráfarandi lögmaður, sagði verkefni síns flokks að draga samstarfsflokkana til vinstri.Kringvarpið Og nýja stjórnin stefnir á meiri olíuleit við Færeyjar. „Við teljum að ekki sé bara um að ræða annað hvort græna orku eða svarta orku, heldur hvorttveggja. Því viljum við hvetja til þess að hafin verði olíuvinnsla í Færeyjum,“ sagði Beinir. Með Sambandsflokkinn innanborðs var fyrirfram ljóst að ríkjasambandinu við Danmörku yrði ekki slitið. Engu að síður ætlar stjórnin að óska eftir meiri áhrifum, einkum í utanríkis- og varnarmálum. Flokksformennirnir handsala samstarfið.Kringvarpið „Við erum því samhuga um að hefja samningaviðræður við dönsku ríkisstjórnina um að fá heimildir til að sækja um aðild að þeim alþjóðastofnunum sem við viljum og geta þar með sinnt hagsmunagæslu úti í heimi. Og sömuleiðis að Færeyjar hafi sjálfsákvörðunarrétt í öllum málum sem viðkoma Færeyjum,“ sagði Beinir Johannesen, verðandi lögmaður Færeyja, eins og heyra má hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Færeyjar Kosningar í Færeyjum Danmörk Tengdar fréttir Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Víðtækar pólitískar málamiðlanir voru nauðsynlegar, sagði Beinir Johannesen, nýr lögmaður Færeyja, á blaðamannafundi í Þórshöfn laust fyrir hádegi. Þar kynntu formenn flokkanna þriggja, sem mynda nýja landsstjórn í Færeyjum, stjórnarsáttmálann sem ber fyrirsögnina „Ábyrgð, stöðugleiki og breið samstaða“. 9. apríl 2026 11:51 Færeyingar vonast eftir hlutdeild í olíuvinnslu Færeyingar sjá tækifæri til að fá hlutdeild í gríðarmiklum umsvifum sem fylgja munu fyrirhugaðri olíu- og gasvinnslu á breska Rosebank-svæðinu. Svæðið er um 130 kílómetra norðvestur af Hjaltlandseyjum en aðeins fimmtán kílómetra austan við lögsögumörk Færeyja. Mun styttra er á svæðið frá Færeyjum heldur en frá Aberdeen, helstu olíuþjónustumiðstöð Bretlandseyja. 28. janúar 2024 07:07 Færeyingar gefa ekki frá sér olíudrauminn Mikill áhugi fyrir olíuleit í Færeyjum, segir í fyrirsögn Kringvarpsins, þar sem umhverfis- og atvinnumálaráðherra Færeyja, Helgi Abrahamsen, segir engin áform þar um að hætta olíuleit. 8. desember 2020 23:36 Hætta olíuleit við Færeyjar Olíuleit hefur verið hætt við Færeyjar, að minnsta kosti í bili, eftir að síðasta olíufélagið skilaði inn leitarleyfi sínu. 15. júní 2016 21:30 Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira
Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Víðtækar pólitískar málamiðlanir voru nauðsynlegar, sagði Beinir Johannesen, nýr lögmaður Færeyja, á blaðamannafundi í Þórshöfn laust fyrir hádegi. Þar kynntu formenn flokkanna þriggja, sem mynda nýja landsstjórn í Færeyjum, stjórnarsáttmálann sem ber fyrirsögnina „Ábyrgð, stöðugleiki og breið samstaða“. 9. apríl 2026 11:51
Færeyingar vonast eftir hlutdeild í olíuvinnslu Færeyingar sjá tækifæri til að fá hlutdeild í gríðarmiklum umsvifum sem fylgja munu fyrirhugaðri olíu- og gasvinnslu á breska Rosebank-svæðinu. Svæðið er um 130 kílómetra norðvestur af Hjaltlandseyjum en aðeins fimmtán kílómetra austan við lögsögumörk Færeyja. Mun styttra er á svæðið frá Færeyjum heldur en frá Aberdeen, helstu olíuþjónustumiðstöð Bretlandseyja. 28. janúar 2024 07:07
Færeyingar gefa ekki frá sér olíudrauminn Mikill áhugi fyrir olíuleit í Færeyjum, segir í fyrirsögn Kringvarpsins, þar sem umhverfis- og atvinnumálaráðherra Færeyja, Helgi Abrahamsen, segir engin áform þar um að hætta olíuleit. 8. desember 2020 23:36
Hætta olíuleit við Færeyjar Olíuleit hefur verið hætt við Færeyjar, að minnsta kosti í bili, eftir að síðasta olíufélagið skilaði inn leitarleyfi sínu. 15. júní 2016 21:30