Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Sindri Sverrisson skrifar 11. apríl 2026 22:49 Daníel Guðni Guðmundsson talaði hreint út eftir tapið gegn Val í kvöld. Sýn Sport Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, segir lið sitt hafa verið rænt sigri á Hlíðarenda í kvöld. Það sé einfaldlega ekki mögulegt að skora sigurkörfu með þeim hætti sem Kári Jónsson gerði fyrir Val. „
Það er mjög svekkjandi að þessi þriggja stiga karfa hafi verið gild,“ sagði Daníel í viðtali við Andra Má Eggertsson og talaði hreint út. Körfuna náði Kári að skora með því að grípa boltann og taka þriggja stiga skot, þó að hann hefði aðeins 0,4 sekúndur til þess, en körfuna má sjá hér að neðan. Daníel segir þetta einfaldlega ekki vera hægt. Tíminn sé ekki nægur. „Nei, það finnst mér ekki. Ég er búinn að horfa á þetta aftur og mér þykir það ekki,“ sagði Daníel. Eina leiðin til að skora á svona litlum tíma sé með því að boltanum sé kastað beint úr innkasti að körfuhringnum og honum blakað í körfuna. „Við vissum að það væri bara „tip in“ sem myndi ganga upp. Að henda boltanum á hringinn og tippa honum ofan í. Aldrei að fara að grípa og skjóta. Það er ekki séns,“ sagði Daníel og minntist þá sérstaklega á dómarann Jóhannes Pál Friðriksson. „Ég bara skil ekki. Það var annar leikur sem Jóhannes var að dæma, Njarðvík gegn Tindastóli kvennamegin, þar sem það var gefinn allt of mikill tími á klukkuna að mínu mati. Ég er búinn að ræða það við formann dómaranefndar og svo lendum við í því nákvæmlega sama hér. Verið að gefa einhvern aukatíma. Ég veit ekki með það en að grípa og koma þriggja stiga skoti, á 0,4 sekúndum, ég á erfitt með að trúa því.“ Ræddi Daníel þá við dómarana á Hlíðarenda og fékk einhverjar skýringar? „Nei þeir hlaupa bara út eftir hvern leik og það er ekki hægt að eiga samskipti við þá. Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu. Ef fróðari menn segja að þetta geti gerst á þessum tíma þá má endilega senda mér það. Ég á mjög erfitt með að sjá það gerast mér finnst vera stuldur hér í kvöld, með þessu. Það er ekki tekið af Valsmönnum að þeir voru góðir hér í kvöld heilt yfir en mér fannst við gera nóg til að vinna þennan leik og þess vegna er þetta mjög svekkjandi.“ Viðtalið við Daníel má sjá í spilaranum hér að ofan. Keflvíkingar eru nú einu tapi frá því að fara í sumarfrí en geta jafnað einvígið í 2-2 á miðvikudaginn, í Reykjanesbæ.
Bónus-deild karla Keflavík ÍF Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira