Stelpurnar okkar kættu hundruð aðdáenda og Glódís gaf óvænta gjöf Sindri Sverrisson skrifar 12. apríl 2026 07:30 Hildur Antonsdóttir brosti breitt til ungra aðdáenda og allir héldu glaðbeittir út í sólina. Samsett/KSÍ Það var mikil gleði og stemning á Laugardalsvellinum í gær þegar stelpurnar okkar í íslenska fótboltalandsliðinu gáfu sér góðan tíma með stuðningsmönnum, veittu eiginhandaráritanir og tóku við heillaóskum fyrir leikina mikilvægu sem fram undan eru.
Ísland mætir Úkraínu í algjörum lykilleik í undankeppni HM næsta þriðjudagskvöld og tekst svo á við sjálfa Evrópumeistara Englands á laugardaginn. Báðir leikirnir eru á Laugardalsvelli. Þangað mættu um 300 aðdáendur í gær til að sjá opna æfingu landsliðsins og hitta hetjurnar sínar eftir æfinguna, eins og sjá má á samfélagsmiðlum KSÍ. Leikmenn íslenska liðsins eru eflaust komnir í góða æfingu við að skrifa nafnið sitt enda dældu þær út eiginhandaráritunum við mikla kátínu gesta. Linda Líf Boama er nýmætt í landsliðið og hafði nógu að snúast eins og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir sem er öllu reynslumeiri.Samsett/KSÍ Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir var svo með óvænta gjöf fyrir unga stelpu sem fékk nýju landsliðstreyjuna og var greinilega í skýjunum. Stelpurnar okkar halda nú áfram æfingum fyrir leikina mikilvægu, sem haft gætu svo mikil áhrif á það hvort liðið spilar á HM í Brasilíu 2027, en miðasala á leikina er á vef KSÍ. Stelpurnar gáfu sér góðan tíma í að ræða við unga aðdáendur sem fjölmenntu.Samsett/KSÍ
HM 2027 í Brasilíu Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Sjá meira