Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Kjartan Kjartansson skrifar 13. apríl 2026 09:18 Mímir Kristjánsson, þingmaður Rauða flokksins í Noregi. Hann sendi manni á sextugsaldri ofbeldishótanir um páskana. Vísir Hálfíslenskur þingmaður á norska þinginu segist hafa látið fé af hendi rakna til góðgerðarsamtaka til þess að gera yfirbót eftir að hann hafði í hótunum við mann um páskana. Hótaði þingmaðurinn meðal annars að senda vítisengla á manninn.
Hótanirnar sendi Mímir Kristjánsson, þingmaður vinstriflokksins Rauða flokksins, á mann sem hafði tjáð sig um hann í athugasemdakerfi norsks fjölmiðlsins. Mímir hótaði manninum barsmíðum og að siga á hann félögum í mótorhjólagenginu alræmda Vítisenglum. Maðurinn kærði Mími til lögreglu en þingmaðurinn bar við ölvun. Málið hefur nú verið fellt niður, að því er segir í frétt norska fjölmiðilsins VG. Mímir segist í færslu á samfélagsmiðli hafa fundist hann þurfa að greiða einhvers konar sekt vegna gjörða sinna. Þess vegna hafi hann ákveðið að gefa tíu þúsund norskar krónur, jafnvirði um 130 þúsund íslenskra króna, til Ønsketransporten, góðgerðarsamtaka sem reyna að uppfylla hinstu óskir fólks með sjúkdóma á lokastigi. „Ég skammast mín innilega fyrir að hafa sent þessi skilaboð og ég hef engan áhuga á að sleppa ódýrt með þau. Að gefa til Ønsketransporten er að minnsta kosti smá framlag frá mér sem gæti verið gagnlegt,“ skrifaði Mímir. Þingmaðurinn, sem náði fyrst kjöri árið 2021, á íslenskan föður og norska móður. Hann hefur alla tíð búið í Noregi og er þingmaður Rogalands í Vestur-Noregi.
Noregur Íslendingar erlendis Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira