Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Lovísa Arnardóttir skrifar 14. apríl 2026 07:55 Velferðarsvið Kópavogsbæjar segir í samantekt að þörf muni fara vaxandi eftir sértæki húsnæði fyrir yngsta aldurshópinn. Vísir/Anton Brink Nokkuð löng bið getur verið eftir plássi í skammtímadvöl í Kópavogi og eftir sértæku húsnæði. Tuttugu börn biðu í lok mars eftir dvöl í skammtímadvöl, elsta umsóknin er frá því í ágúst 2021. Þá bíða 28 eftir sértæku húsnæði. Meðalaldur umsækjenda er 39 ár og segir í samantekt velferðarsviðs bæjarins að þörfin muni fara verulega vaxandi hjá þeim sem yngri eru en 25 ára.
Farið er yfir ýmsa biðflokka í nýrri samantekt frá velferðarsviði. Þar kemur til dæmis fram að algengast sé að fólk bíði í sex til tólf mánuði eftir félagslegu húsnæði í Kópavogi. Þó kemur það alveg fyrir að fólk bíði lengur. Alls eru 88 á bið eftir félagslegu húsnæði í Kópavogi samkvæmt samantekt velferðarsviðs bæjarins. Þar kemur einnig fram að 115 einstaklingar eru á bið eftir einstaklingsstuðningi og stuðningi við foreldra og sautján einstaklingar eru á bið eftir aukningu á þjónustu. Í samantekt velferðarsviðs segir að aðeins sé verið að ráða inn starfsfólk fyrir einstaklinga á biðlista í flokki I, aðrir flokkar séu á bið og ekki liggi fyrir hvenær sú þjónusta fer í framkvæmd vegna skorts á fjárheimildum. Í samantekt segir að tafir í biðflokki 1 skýrist að hluta af töfum á ráðningum. Alls eru 36 börn í flokki 1, 79 í flokki 2 og sex í flokki 3. Þá eru sautján sem bíða eftir aukningu. Í samantekt kemur fram að lengsti biðtími í flokki 1 sé síðan 26.03.2024. Í flokki 2 er lengsti biðtími síðan 1. janúar 2023. Í flokki 3 er lengsti biðtími síðan 31. október 2023. 41 á bið eftir stuðningsfjölskyldu Í samantektinni er einnig farið yfir það hversu margir eru á bið eftir þjónustu barnaverndar. Þar kemur fram að alls séu 21 einstaklingur á bið eftir persónulegum ráðgjafa og tilsjón og 41 einstaklingur á bið eftir stuðningsfjölskyldu og er aldursdreifingin frá 0-17 ára. Í samantektinni segir að fjármagn ráði ekki töfum á biðlista heldur tími sem taki að ráða inn starfsfólk. Í samantekt kemur einnig fram að alls eru fimmtán fullorðnir einstaklingar á bið eftir stuðningsþjónustu á heimili og 41 að bíða eftir stuðningsfjölskyldu. Alls eru 32 fullorðnir fatlaðir einstaklingar á bið eftir stuðningsþjónustu í formi tímavinnu og fjórir einstaklingar eru á bið eftir aukningu á þjónustu. Í samantekt er farið yfir bið eftir mati á þjónustuþörf vegna heimastuðnings. Þar segir að meðalbiðtími eftir mati á þjónustuþörf vegna fyrstu umsóknar sé 11,9 dagar en meðalbiðtími eftir endurmati vegna endurnýjunar eða umsóknar um aukningu á þjónustu sé 14,5 dagar. Tuttugu börn á bið eftir skammtímadvöl Þar segir einnig að í lok mars hafi tuttugu fötluð börn og ungmenni beðið eftir því að komast í skammtímadvöl. Þjónustutími skammtímadvalar geti verið allt frá hluta út degi og upp í 15 sólarhringa á mánuði. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu (Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður) reki þrjú úrræði í samstarfi (Hrauntungu, Móaflöt og Hnotuberg) sem mynda samfellda þjónustukeðju frá barnæsku til fullorðinsára með það að markmiði að styðja við sjálfstæða búsetu. Uppbygging úrræða innan þjónustukeðjunnar hafi þó ekki aukist frá 2011 þrátt fyrir vaxandi þjónustuþörf. Í lok mars hafi því alls 20 einstaklingar verið á bið eftir skammtímadvöl (Móaflöt, Hnotuberg og Hrauntungu). Meðalaldur umsækjenda var rúm 13 ár, elsti umsækjandinn var 23 ára en sá yngsti rúmlega 5 og hálfs árs. Í samantekt kemur fram að meðalaldur umsókna um skammtímadvöl er 21,8 mánuðir þar sem sú nýjasta er mánaðar gömul en sú elsta er síðan í ágúst 2021. Þá kemur fram að enginn biðlisti sé sem stendur í höfuðborginni eftir skólaúrræði fyrir fötluð ungmenni á framhaldsskólaaldri. Starfsemin sé tímabundið staðsett í Roðasölum 1 og rúmi alla notendur í dag, sem eru 12 í vetrarstarfinu, en notendafjöldi muni líklega ná 27-30 yfir sumartímann. Yngsti 19 og elsti 52 Þá kemur fram að átta Kópavogsbúar séu á bið eftir ýmsum vinnu- og virkniúrræðum, yngsti einstaklingurinn er 19 ára en sá elsti er 52 ára. Flestir á biðlistanum eru á aldrinum 19–23 ára. Þá segir að í lok mars hafi 28 einstaklingar verið á bið eftir sértæku húsnæði í Kópavogi. Meðalaldur umsækjenda sé tæp 39 ár, flestir umsækjenda búi í foreldrahúsum eða 15 talsins og átta einstaklingar séu undir 25 ára aldri. „Nokkuð ljóst er að þörfin í þeim aldurshópi mun fara verulega vaxandi,“ segir í samantekt velferðarsviðs.
Málefni fatlaðs fólks Eldri borgarar Kópavogur Hafnarfjörður Garðabær Sveitarstjórnarmál Barnavernd Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Sjá meira