Dagskráin: Oddaleikur í körfunni en Albert og félagar þurfa lítið kraftaverk Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2026 06:02 Sara Rún Hinriksdóttir og félagar í bikarmeistaraliði Keflavíkur mæta í Vesturbæinn. vísir / Vilhelm Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á fimmtudögum.
Stórleikur kvöldsins er oddaleikur KR og Keflavíkur um sæti í undanúrslitum Bónusdeildar kvenna í körfubolta. Haukar, Njarðvík og Grindavík eru komin áfram og hér er barist um fjórða og síðasta sætið í undanúrslitaeinvígunum og um leið kemur í ljós hvaða lið mætast. Evrópudeildin og Sambandsdeildin eru í sviðsljósinu í kvöld en þar geta liðin tryggt sér sæti í undanúrslitum keppninnar. Okkar fulltrúi í baráttunni er Albert Guðmundsson hjá ítalska félaginu Fiorentina. Útlitið er samt ekki bjart eftir fyrri leikinn í átta liða úrslitum Sambandsdeildarinnar. Fiorentina tapaði fyrri leiknum á móti Crystal Palace 3-0 og þarf því á kraftaverki í Flórens í kvöld að halda til að komast áfram. Ensku liðin Aston Villa og Nottingham Forest eru bæði á heimavelli í Evrópudeildinni. Villa-menn eru í frábærum málum eftir 3-1 útisigur á Bologna en Forest-menn náðu 1-1 jafntefli á útivelli á móti Porto. Á KKÍ TV má sjá leik eitt í báðum undanúrslitaeinvígunum í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta þar sem barist er um laust sæti í Bónusdeild karla næsta vetur. Það verður einnig sýnt frá golfmóti og í lok kvölds verður bein útsending frá leik í bandarísku NHL-deildinni í íshokkí. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag. SÝN Sport Ísland Klukkan 19.00 hefst bein útsending frá oddaleik KR og Keflavíkur í átta liða úrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta. Klukkan 21.10 hefst Bónus Körfuboltakvöld kvenna þar sem farið verður yfir leiki kvöldsins og hitað upp fyrir undanúrslitin sem eru fram undan. SÝN Sport Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Nottingham Forest og Porto í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta. SÝN Sport 2 Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik AEK Aþenu og Rayo Vallecano í átta liða úrslitum Sambandsdeildarinnar í fótbolta. SÝN Sport 3 Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Celta og Freiburg í átta liða úrslitum Sambandsdeildarinnar í fótbolta. Sýn Sport 4 Klukkan 22.00 hefst útsending frá JM Eagle LA Championship-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni. SÝN Sport Viaplay Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Fiorentina og Crystal Palace í átta liða úrslitum Sambandsdeildarinnar í fótbolta. Klukkan 00.05 hefst bein útsending frá leik Winnipeg Jets og San Jose Sharks í NHL-deildinni í íshokkí í Bandaríkjunum. KKÍ TV 1 Klukkan 19.15 hefst bein útsending frá leik Sindra og Selfoss í undanúrslitum úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta. KKÍ TV 2 Klukkan 19.15 hefst bein útsending frá leik Breiðabliks og KV í undanúrslitum úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta.
Dagskráin í dag Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Fleiri fréttir „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Chelsea fylgist með 16 ára brasilískum varnarmanni Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu „Held ég muni pakka henni saman“ City-menn búnir að áfrýja Óðinn heim í KR Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Draumadagar Emelíu: Sjáðu fyrsta mark hennar í Meistaradeild Evrópu Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sjá meira