„Ég er gamli maðurinn svo ég tek alla þá hvíld sem er í boði“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 14. apríl 2026 21:41 Jeremy Pargo átti flottan leik fyrir Grindavík. Guðmundur/Vísir Grindavík tryggði sig inn í 4-liða úrslit Bónus deildar karla í kvöld þegar þeir gerðu sér góða ferð í IceMar-höllina í Njarðvík í kvöld. Eftir heldur kaflaskiptan leik voru það Grindvíkingar sem fóru með sjö stiga sigur 84-91 og um leið 3-1 sigur í einvíginu. Jeremy Pargo ræddi við Vísi eftir leik. „
Þetta var erfiður leikur og erfið sería“ sagði Jeremy Pargo eftir sigurinn í kvöld. „Þetta er erfitt lið að að spila við og alveg sama hvað við vorum að gera þá héldu þeir áfram að setja skot og þeir byrjuðu leikinn virkilega vel svo þetta er erfitt lið“ „Því miður þurfti einhver að tapa þessu og við vorum það lánsamir að standa uppi sem sigurvegarar“ Það var ekki mikið sem skildi á milli liðana í kvöld annað en að Grindavík setti stóru skotin á meðan þau duttu ekki fyrir Njarðvík. „Við unnum leikinn með sjö stigum svo það var ekki mikið sem skildi á milli. Við vorum heppnir að setja góð skot seint í leiknum sem hjálpuðu okkur að sigla þessu heim“ Þegar allt var í járnum í fjórða leikhluta þurfti eitthvað sérstakt til þess að brjóta upp leikinn og þar steig Jeremy Pargo upp og setti nokkur stór skot fyrir Grindavík. „Ég vill ekki meina að ég hafi stigið sérstaklega upp. Ég var heppinn að skotin mín voru að detta. Liðið trúði á mig og þegar ég var ekki að setja þessi skot voru þeir að setja þau svo það er það stærsta í þessu“ „Við unnum þetta saman sem lið og ég er ánægður með okkur alla og stoltur af öllum þeim sem stigu inn á völlinn og öllum af bekknum“ Þetta er búið að vera frábær sería en hvernig gerir Jeremy Pargo hana upp? „Þetta var mjög erfið sería á móti góðu liði. Þeir voru kraftmiklir, sterkir og gáfust ekki upp í eina sekúndu í þessu einvígi“ „Þeir komu á okkar heimavöll og sigruðu okkur í leik eitt svo við urðum að vakna og gera það sem við gátum til að vinna og sem betur fer þá unnum við síðustu þrjá“ Þrátt fyrir að Grindavík hafi unnið þrjá leiki í röð og farið í gegnum Njarðvík vill Jeremy Pargo ekki hugsa of langt fram í tímann. „Ég er ekki að huga um hversu langt við getum farið heldur bara næsta leik og það er það sem skiptir máli“ „Við verðum í góðum málum ef við vinnum næsta leik og það er það mikilvæga í þessu, bara næsti leikur“ Grindavík fær smá hvíld núna milli sem kemur sér virkilega vel. „Samkvæmt öllum þarf ég á því að halda er það ekki? Ég er gamli maðurinn svo ég tek alla þá hvíld sem er í boði“ sagði Jeremy Pargo brosandi.
Grindavík Körfubolti Bónus-deild karla Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Leik lokið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú keflvísk mörk á níu mínútum Íslenski boltinn Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Íslenski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fleiri fréttir Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Leik lokið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú keflvísk mörk á níu mínútum Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Margfaldir meistarar fóru í hlutverk kylfusveina fyrir Íslandsmótið Lukaku lætur ekki sjá sig Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Alcaraz dregur sig aftur úr keppni Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Fór grátandi af velli Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sjá meira