Mannréttindi í hættu í yfirfullum fangelsum Tinna Eyberg Örlygsdóttir skrifar 16. apríl 2026 08:17 Sem verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, sem starfar að málefnum einstaklinga bæði í afplánun og eftir afplánun, tek ég heilshugar undir áhyggjur stjórnar Fangavarðafélags Íslands af yfirfullum fangelsum. Nýleg umfjöllun sýnir að staðan hefur enn versnað og fangelsiskerfið er nú komið að þolmörkum. Frá minni reynslu, eftir samtöl við þátttakendur í Aðstoð eftir afplánun, verkefni á vegum Rauða krossins, er ljóst að þessar aðstæður hafa veruleg áhrif. Þær bitna á aðgengi að þjónustu, skerða réttindi og grafa undan virðingu og öryggi, auk þess að draga úr raunhæfum möguleikum til endurhæfingar og árangursríkrar endurkomu út í samfélagið. Álag, vanlíðan og óvissa eykst hjá einstaklingum sem þegar standa höllum fæti. Í framkvæmd birtist þetta meðal annars þannig að fangaverðir og samfangar eru alltof oft sett í hlutverk umönnunaraðila fyrir einstaklinga með miklar og flóknar þarfir sem ættu fremur heima innan sérhæfðra úrræða. Þá er gripið til einangrunar við aðstæður sem ættu ekki að kalla á slíkar ráðstafanir, þrátt fyrir að einangrunarvist í gæsluvarðhaldi eigi samkvæmt alþjóðlegum mannréttindareglum einungis að vera beitt í algjörum undantekningartilvikum og til skamms tíma. Það er sérstaklega mikilvægt að horfast í augu við þá staðreynd að hluti þeirra einstaklinga sem eru vistaðir í fangelsum hérlendis ætti fremur að fá þjónustu annars staðar. Einstaklingar sem glíma við alvarlegan geðrænan eða líkamlegan vanda eiga að fá viðeigandi þjónustu innan heilbrigðiskerfisins, en ekki vera vistaðir í fangelsi. Þegar kerfið bregst að þessu leyti eykst bæði vandi einstaklinganna og álag á fangelsiskerfið í heild. Það hefur jafnframt keðjuverkandi áhrif þar sem fangelsi eru látin bera ábyrgð sem þau eru hvorki hönnuð né búin til að sinna, með neikvæðum afleiðingum fyrir bæði starfsfólk og fólk í afplánun. Þessar aðstæður grafa jafnframt undan langtímaárangri. Árangursrík endurhæfing, sem er eitt af meginmarkmiðum fangavistar, byggir á stöðugleika, stuðningi og aðgengi að viðeigandi þjónustu — skilyrðum sem erfitt er að tryggja við núverandi aðstæður. Þrátt fyrir vilja allra til að bæta fangelsiskerfið virðist þróunin því miður vera í öfuga átt, og staðan nú sú að brotið er á grundvallarmannréttindum og dregið úr getu kerfisins til að uppfylla markmið sín — að stuðla að öryggi, endurhæfingu og þátttöku í samfélaginu að nýju. Það er því brýnt að grípa til samræmdra og tafarlausra aðgerða. Núverandi staða er ekki sjálfbær og krefst skýrra ákvarðana um forgangsröðun, uppbyggingu úrræða og ábyrgð innan kerfisins. Það sem nú vantar er ekki frekari greining, heldur aðgerðir. Höfundur er verkefnastjóri hjá Rauða krossinum í verkefninu Aðstoð eftir afplánun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fangelsismál Mannréttindi Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar