Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Freyja Þórisdóttir skrifar 16. apríl 2026 17:44 Frá vinstri eru barþjónarnir Kría Freysdóttir, Sindri Snær Tryggvason og Sigurhans Óskar Sigurhansson. Aðsend Í gær kepptust margir af bestu barþjónum landsins um sigurinn með kokteila sem voru meðal annars bornir fram í kókómjólkurfernum, kransakökum og paprikum. Keppnirnar fara fram samhliða Reykjavík Cocktail Week sem hófst á mánudaginn, 13. apríl, og stendur yfir fram á sunnudagskvöld. Barþjónaklúbbur Íslands stendur fyrir þessari árlegu hátíð kokteilamenningar á Íslandi í samstarfi við helstu vínbirgja, veitingahús og bari á höfuðborgarsvæðinu.
Opnunarhóf hátíðarinnar var haldið á Ský bar á mánudagskvöld, 13. apríl, en Bruno Santos, forseti Alþjóðlegu barþjónasamtakanna IBA, og Xino Wu, ritari samtakanna, voru meðal gesta. Teitur Riddermann Sciöth, forseti barþjónaklúbbsins, setti hátíðina sem hefur síðustu ár staðið yfir í þrjá daga en nær núna yfir heila viku. Yfir fjörutíu staðir taka þátt í hátíðinni og á þeim hafa verið þróaðir sérstakir Reykjavík Cocktail Week kokteilaseðlar. Þá munu staðirnir einnig bjóða upp á fjölbreytta viðburði tengda hátíðinni sem eru öllum opnir. Leó Snæfeld, einn keppenda, virðir fyrir sér drykki hinna keppendanna en í ár var Íslandsmeistaramótið með því sniði að allir keppendur áttu að framreiða kaffikokteila.Aðsend Samhliða hátíðinni er haldin Íslandsmeistarakeppni barþjóna sem og þemakeppni barþjóna en í ár var þemað Ekkert mál! eða „anything but a cup“. Forkeppnirnar fóru fram í Kolaportinu í gær, miðvikudaginn 15. apríl, og alls tóku ríflega þrjátíu barþjónar þátt. Þar af kepptu ellefu barþjónar um Íslandsmeistaratitilinn en sá sem stendur uppi sem sigurvegari er með hæstu samanlögðu stigin úr fimm keppnisliðum. Það eru hraðakeppni, kunnáttupróf, lyktarpróf, bragðpróf og svo keppni um tækni við framreiðslu á drykk. Áður óséð mál Þemakeppnin hins vegar er talsvert einfaldari og sem fyrr segir var þemað í ár Ekkert mál! Keppendum var því gert að bera fram kokteila í ílátum sem teljast ekki hefðbundin glös. Þá voru drykkir meðal annars bornir fram í kransakökum, vatnsbyssum og blómapottum. Meðal dómara var vínsérfræðingurinn og frumkvöðullinn Adam Helgason en ásamt honum var áhrifavaldurinn Guðný Ljósbrá. „Það var svo skemmtilegt að sjá hvað fólk gat verið svona kreatívt og farið út fyrir kassann í þessari drykkjarsköpun,“ sagði Adam í samtali við fréttamann Vísis. Guðný tók þá heilshugar undir og segir að kokteilarnir hafi verið frábærir rétt eins og málin. Frá vinstri eru barþjónarnir Heimir Morthens, Georg Sillat og Svanhvít Thea.Aðsend Þrír barþjónar komust áfram í þemakeppninni og fá því boð á Gala-kvöld barþjónaklúbbsins sem er á sunnudaginn, 19. apríl, í Gamla bíó en þá er skorið úr um úrslitin. Þau þrjú sem komust áfram og eiga möguleika á fyrsta sætinu eru: Svanhvít Thea Árnadóttir á Veður með drykkinn Marsípaník Heimir Morthens á Drykk með drykkinn Núðluna Georg Sillat á Tipsý með drykkinn Double Kick Frá vinstri eru barþjónarnir Pétur Kolka, Elvar, Björg Elva, Leó Snæfeld og Grétar.Aðsend Þau fimm sem komust áfram í Íslandsmeistarakeppni barþjóna og keppa í hraðakeppni á Gala-kvöldinu á sunnudaginn eru: Grétar Matthíasson á Blik Bistro með drykkinn Yuzu Bean Leó Snæfeld á Jungle með drykkinn Þriðja Kryddið Björg Elva Friðfinnsdóttir á Geira Smart með drykkinn Firefly Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson á OTO með drykkinn Atomic Joe Elvar Sigurðsson á Nínu með drykkinn Midnight Banana Sigurvegari Íslandsmeistaramóts barþjóna mun keppa fyrir hönd Íslands í Macau, Kína, í október.
Drykkir Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira