Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 19. apríl 2026 07:00 Fullyrðingar um að samið hafi verið um það við Evrópusambandið, þegar umsóknarferlið að sambandinu var í gangi á sínum tíma, að ekki þyrfti að koma til aðlögunar að regluverki þess fyrr en eftir þjóðaratkvæði um samning standast ekki skoðun. Hafi sú hins vegar verið raunin má ljóst vera af gögnum Evrópusambandsins í tengslum við umsóknina að ekki hafi verið farið eftir því enda liggur fyrir samkvæmt þeim að krafa hafi verið gerð um slíka aðlögun allt fram undir það síðasta. Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hélt þessu fram í grein á Vísi fyrir helgi. Vísaði hann til skýrslu Össurar Skarphéðinssonar, þáverandi utanríkisráðherra, í apríl 2013 þess efnis að slíkt samkomulag hefði verið gert. „Samningsaðilar náðu saman um að Ísland myndi ekki ráðast í breytingar á stofnunum eða löggjöf fyrr en að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir þannig í henni. Síðar segir að samkomulagið hafi náðst „tiltölulega snemma í ferlinu“ sem hófst 2009. Hins vegar segir til að mynda í fréttatilkynningu frá Evrópusambandinu dagsettri 18. desember 2012 vegna opnunar sex nýrra kafla umsóknarferlisins, skömmu áður en Össur setti það á ís í aðdraganda þingkosninganna þá um vorið, að Ísland „þurfi að halda áfram að skila árangri í aðlögun að og innleiðingu regluverksins í þessum köflum“. Síðan er rætt um ýmis skilyrði fyrir opnun kaflanna sem yfirleitt snerust um aðlögun en í sumum tilfellum tímasetta áætlun vegna aðlögunar. Flestir kaflarnir sem rætt er um í fréttatilkynningunni falla ekki undir EES-samninginn. Þar á meðal skattamál, byggðamál, peningamál og utanríkistengsl. Þá kemur fram í henni að Össur hafi farið fyrir íslenzku sendinefndinni á fundinum. Hvernig stenzt þetta og fleira í gögnum Evrópusambandsins fullyrðingu Dags þess efnis að samkomulag hafi legið fyrir, og það tiltölulega snemma í ferlinu, um að Ísland þyrfti einungis að aðlagast sambandinu eftir þjóðaratkvæðið? Fram kemur beinlínis í greinargerðinni með þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðið í lok sumars, sem væntanlega var samin í utanríkisráðuneytinu, að viðræður um inngöngu í Evrópusambandið snúist um aðlögun: „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“ Haft var enn fremur eftir skrifstofustjóra þáverandi stækkunarráðherra Evrópusambandsins og embættismönnum utanríkisráðuneytisins í skýrslu Alþjóðamálastofnunar um umsóknarferlið frá 2015 að Ísland hafi getað samið um það „hvenær aðlögun í ákveðnum málaflokkum eigi sér stað.“ Ákveðnum málaflokkum. Ekki öllum. Enda kemur fram í gögnum sambandsins að í sumum tilfellum hafi verið talið nóg að leggja fram tímaáætlun um aðlögun. Í öðrum hins vegar ekki. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar