Borgarlínan og umferðin í Grafarvogi Þórir Garðarsson skrifar 20. apríl 2026 06:00 Gert er ráð fyrir að Borgarlínan fari að stórum hluta í sérrými, jafnt í Grafarvogi sem annars staðar. En slíkt rými verður ekki til úr engu. Á jafn mikilvægum samgönguæðum eins og Höfðabakka og Gullinbrú verður það ekki gert nema með einum hætti: að taka rými frá núverandi umferð og þrengja að henni. Fyrir íbúa í Grafarvogi þýðir þetta einfaldlega meiri þrengsli, lengri ferðatíma og endalausar tafir. Nú þegar er reyndar byrjað að þrengja að umferð í og úr Grafarvogi með arfavitlausum aðgerðum á Höfðabakka. Umferðin hefur þyngst og flæði versnað. Strætó situr fastur í sömu umferð eins og aðrir, sem leiðir til lengri ferðatíma og lakari þjónustu. Hugmyndafræðin á bak við þessa tafastefnu liggur fyrir: að gera notkun einkabílsins svo óbærilega að Borgarlínunni verði tekið fagnandi. Skortur á skýrum svörum veldur áhyggjum. Grafarvogsbúar fá ekki skýra mynd af því hvernig þessar lykilæðar verða skipulagðar til framtíðar, þrátt fyrir að breytingarnar muni hafa bein áhrif á daglegt líf þeirra. Hér er um að ræða verkefni upp á hundruð milljarða sem á að breyta lífi fólks. Í slíkum aðstæðum ætti að liggja skýrt fyrir hvernig það bætir stöðuna en ekki að gera hana verri. Fyrir íbúa í Grafarvogi er þetta kýrskýrt: ef lausnin felst í því að þrengja að umferð löngu áður en meintur valkostur kemst í gagnið, þ.e. Borgarlínan, þá er hún engin lausn. Því er eðlilegt að hafna þessum hugmyndum um Borgarlínu í núverandi mynd – alfarið. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórir Garðarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Gert er ráð fyrir að Borgarlínan fari að stórum hluta í sérrými, jafnt í Grafarvogi sem annars staðar. En slíkt rými verður ekki til úr engu. Á jafn mikilvægum samgönguæðum eins og Höfðabakka og Gullinbrú verður það ekki gert nema með einum hætti: að taka rými frá núverandi umferð og þrengja að henni. Fyrir íbúa í Grafarvogi þýðir þetta einfaldlega meiri þrengsli, lengri ferðatíma og endalausar tafir. Nú þegar er reyndar byrjað að þrengja að umferð í og úr Grafarvogi með arfavitlausum aðgerðum á Höfðabakka. Umferðin hefur þyngst og flæði versnað. Strætó situr fastur í sömu umferð eins og aðrir, sem leiðir til lengri ferðatíma og lakari þjónustu. Hugmyndafræðin á bak við þessa tafastefnu liggur fyrir: að gera notkun einkabílsins svo óbærilega að Borgarlínunni verði tekið fagnandi. Skortur á skýrum svörum veldur áhyggjum. Grafarvogsbúar fá ekki skýra mynd af því hvernig þessar lykilæðar verða skipulagðar til framtíðar, þrátt fyrir að breytingarnar muni hafa bein áhrif á daglegt líf þeirra. Hér er um að ræða verkefni upp á hundruð milljarða sem á að breyta lífi fólks. Í slíkum aðstæðum ætti að liggja skýrt fyrir hvernig það bætir stöðuna en ekki að gera hana verri. Fyrir íbúa í Grafarvogi er þetta kýrskýrt: ef lausnin felst í því að þrengja að umferð löngu áður en meintur valkostur kemst í gagnið, þ.e. Borgarlínan, þá er hún engin lausn. Því er eðlilegt að hafna þessum hugmyndum um Borgarlínu í núverandi mynd – alfarið. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar