Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Samúel Karl Ólason skrifar 21. apríl 2026 00:17 Steinunn Ólína segist hafa verið skálkum skjól frá barnsaldri og hún nenni því ekki lengur. Vísir/Arnar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona, segir að nauðgun sem hún varð fyrir eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu á árum áður, hafi leitt til þess að hún hafi farið út í gerð hlaðvarpsins Ólínuskjölin. Hún hafi nýverið tekið að sér verkefni sem maðurinn hafi einnig átt að vera í og hann hafi neitað að stíga til hliðar.
Þetta er meðal þess sem Steinunn sagði í viðtali á Rauða borðinu á Samstöðinni sem birt var á netinu fyrr í kvöld. Þar ræddi hún Ólínuskjölin, aðdraganda þeirra, ofbeldi sem hún varð fyrir sem barn og ýmislegt annað. Í hlaðvarpinu fjallar Steinunn tæpitungulaust um reynslu sína en hún segir markmiðið fyrst og fremst að „vinna úr eigin reynslu og mögulega hjálpa öðrum sem kunna að hafa lent í erfiðum aðstæðum að finna kjark til að segja sína sögu.“ Steinunn rekur í viðtalinu þá ákvörðun sína að opna á Ólínuskjölin til tiltekins atburðar. Þessi hugmynd hafi ekki verið til fyrir nokkrum vikum. Hún hafi lengi barist gegn sjókvíaeldi en hún hafi nýverið séð mynd af manni sem nauðgaði sér á árum áður í auglýsingu samtaka fyrir náttúruvernd. „Ég fór algerlega á límingunum yfir þessu,“ segir Ólína. Nokkrum dögum síðar hafi hún hitt vinkonu sína og rætt við hana um verkefni sem hún hafði nýverið tekið að sér til að gera um næstu jól, með henni. Steinunni hlakkaði mikið til þessa verkefnis en vinkonan sagði henni að umræddur maður ætti einnig að taka þátt í því. Hún segir manninn hafa ráðist fyrirvaralaust á sig eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu, fyrir um tuttugu og fimm til þrjátíu árum síðan, og hann hafi nauðgað henni, staðið upp, girt sig og brosað til hennar. „Þetta var maður sem ég var búinn að þekkja frá því ég var lítil stúlka og þetta varð mér mikið áfall. Mér varð svo brugðið.“ Viðtalið við Ólínu má sjá í spilaranum hér að neðan. Hún segist hafa farið á fund þáverandi þjóðleikhússtjóra, Stefáns Baldurssonar, og sagði hann hafa brugðist rétt við. „Hann sagði við mig: „Hvað viltu gera Steinunn? Viltu kæra eða viltu hvað?“ og ég sagði: „Neinei, ég ætla bara að tala við manninn“. Sem ég og gerði.“ Hún segir manninn hafa beðið sig fyrirgefningar og þau hafi sæst. „Að ég hélt. Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta og þetta yrði ekkert mál.“ Steinunn segir að hún hafi nýverið skrifað þessum manni og beðið hann um að víkja frá áðurnefndu verkefni. Hún hefði áður sagt sig frá verkefnum sem hann kæmi að, þar sem hún kærði sig ekki um að vera í hans návist. „Stundum hefur það verið þannig að hann hefur verið þar, án þess að ég hafi vitað af því, og ég hef alveg umberið það. En nú er ég hætt að bjóða mér upp á slíkt. Ég er bara orðin fullorðin og nenni ekki lengur að vera í félagsskap við fólk sem ber enga virðingu fyrir öðrum.“ Blá og marin Steinunn segir manninn ekki hafa brugðist vel við beiðninni og gefið til kynna að hann þyrfti á starfinu að halda. „Síðan svaraði hann mér með þessari klassísku setningu, sem er núna búið að stimpla inn í íslenska orðræðu. Svona orðalag sem þýðir ekki neitt og er særandi fyrir þá sem þola og gefur geranda eða þeim sem vill standa með geranda ákveðið niðurlægingarvald. Af því hann endar bréf sitt til mín með orðunum: „Mér þykir leiðinlegt að þetta hafi verið upplifun þín“.“ Steinunn segir hann vita að hún hafi farið til þjóðleikhússtjóra á sínum tíma, að þau hafi átt samtal og að hún hafi verið blá og marin við hann. „Um það vitnar mitt fjölskyldufólk, sem tók á móti mér þegar ég kom heim eftir þetta atvik, að ég hafi barist við manninn.“ Hún segist hafa svarað til baka og sagt manninum að hann réði því hvað hann gerði, hvort hann virti óskir hennar eða ekki. Síðan hafi hún skrifað honum lýsingu á því sem hefði gerst, minnt hann á að hún hefði farið til þjóðleikhússtjóra og sagt öllum í leikhúsinu frá þessu. Steinunn segist hafa látið vita af þessu af því að hún hafi viljað vara aðra við. Hún hafi þó borið virðingu fyrir manninum og þekkt hann lengi og því hafi hún ekki viljað eyðileggja líf hans. Eftir það lokaði maðurinn á frekari samskipti milli þeirra og segist Ólína þá hafa tekið þá ákvörðun að leysa frá skjóðunni. „Nú er ég búinn að vera að bera blak af vesalingum, vera skálkum skjól frá því ég var fjögurra ára gömul og veistu ég bara nenni þessu ekki lengur.“
Kynferðisofbeldi Þjóðleikhúsið Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Innlent Lögreglan leitar enn að Ernu Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Fleiri fréttir Til marks um tíma þegar fólk vildi gefa eitthvað til baka Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“ Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl Fluttur á sjúkrahús eftir að hafa ekið á kyrrstæðan bíl úti í vegkanti Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Skattamál: „Sumir kalla það hækkun, aðrir kalla það að hætta að fá afslátt“ Nóróveira í ostrum Fær ekki lögbundna þjónustu og óvissa um framtíð listaverks Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Lögreglan leitar enn að Ernu „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Kölluð út vegna aflvana báts við Hellisey Segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Tæplega tveggja ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Þessi 24 vilja taka við bæjarstjórastólnum af Magnúsi Skráðum félögum í Nýju Avalon fjölgaði um 575 prósent Telja ríkið vera að brjóta samkomulag um börn með fjölþættan vanda Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut „Við stöndum öll með starfsemi Samhjálpar“ Óvissa með kaffistofu Samhjálpar og listaverk Gerðar í hættu Konum sem beita heimilisofbeldi fjölgar Kosti um tvo milljarða að laga verstu gangstéttirnar í borginni Hyggjast stórbæta aðstöðu ferðamanna við Hvítserk „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Jarðskjálftar í grennd við Húsafell en enginn órói „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Fluttur á slysadeild eftir að bifreið var ekið á rafskútu Sjá meira